Hækkun á launum bankastjóra Landsbankans, Lilju Bjarkar Einarsdóttur, hefur verið gagnrýnd, og sú gagnrýni er skiljanleg, segir í tilkynnigu frá bankaráði Landsbankans. Þrátt fyrir það telur ráðið að hækkunin á laununum sé í samræmi við starfskjarastefnu bankans.
Bankaráð Landsbankans hækkaði mánaðarlaun bankastjórans í 3,8 milljónir króna í apríl í fyrra. Með því hafa laun hans hækkað um 140 prósent á fjórum árum, sem er fjórum sinnum meiri hækkun en hjá almennri launavísitölu.
Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra hefur harðlega gagnrýnt launahækkunina í dag, og sagt hana fara gegn tilmælum sem fjármála- og efnahagsráðherra sendi frá sér árið 2017, til allra ríkisstofnanna og ríkisfyrirtækja.
„Undanfarna daga hefur launahækkunin verið sett í samhengi við almennar umræður um kjaramál. Bankaráð er meðvitað um að kjör bankastjóra eru vissulega góð en þau eru í samræmi við starfskjarastefnu bankans, sem hluthafar hafa samþykkt, um að starfskjör eigi að vera samkeppnishæf en þó ekki leiðandi.
Að mati bankaráðs hefur lengi verið ljóst að breyta þyrfti kjörum bankastjóra Landsbankans og færa þau nær þeim kjörum sem starfskjarastefnan kveður á um. Þegar ákvörðun um laun bankastjóra Landsbankans og fleiri stjórnenda voru færð undan kjararáði með lögum sem Alþingi samþykkti, hafa laun bankastjóra Landsbankans hækkað tvívegis, annars vegar frá 1. júlí 2017 og hins vegar frá 1. apríl 2018. Við þá ákvörðun var ljóst að launin voru lægri en laun æðstu stjórnenda hjá öðrum stórum fjármálafyrirtækjum.
Forsagan er sú að kjararáði var árið 2009 falið að úrskurða um laun bankastjóra Landsbankans. Á sama tíma sagði í eigendastefnu ríkisins að laun stjórnenda ættu að standast samanburð á þeim sviðum sem viðkomandi fyrirtæki starfaði á, án þess að vera leiðandi. Þessi tilhögun var gagnrýnd af þáverandi bankaráði Landsbankans en beiðnir til stjórnvalda um breytingar náðu ekki fram að ganga. Afleiðingin varð sú að í mörg ár voru kjör bankastjóra Landsbankans töluvert lægri en laun hjá stjórnendum sambærilegra fyrirtækja. Þau voru jafnframt lægri en laun framkvæmdastjóra hjá Landsbankanum. Þær breytingar sem bankaráð hefur nú gert á kjörum bankastjóra Landsbankans eru í samræmi við starfskjarastefnu bankans sem hluthafar hafa samþykkt og hefur verið óbreytt í mörg ár,“ segir í tilkynningu bankaráðsins.
Í bankaráði Landsbankans eru Helga Björk Eiríksdóttir, formaður, Berglind Svavarsdóttir, varaformaður, Einar Þór Bjarnason, Hersir Sigurgeirsson, Jón Guðmann Pétursson og Sigríður Benediktsdóttir.
Íslenska ríkið á 98,2 prósent hlut í bankanum, bankinn sjálfur 1,5 prósent og 900 aðrir hluthafar, aðallega starfsmenn Landsbankans, eiga 0,3 prósent hlut.