Starfsgreinasamband Íslands hefur vísað kjaradeilu sinni við Samtök atvinnulífsins til ríkissáttasemjara.
Í tilkynningu frá sambandinu segir að það hafi átt í viðræðum við Samtök atvinnulífsins um nýjan kjarasamning frá því í október 2018. „Á þeim tíma hafa aðilar átt tæplega 80 fundi um sértæk mál, sem og hátt í 30 fundir viðræðunefnda SGS og SA, um forsendur og innihald nýs kjarasamnings. Ýmislegt hefur þokast áfram á undangengnum vikum í einstökum málum og umræðugrundvöllur til staðar á öðrum sviðum. Þrátt fyrir það er það mat viðræðunefndar Starfsgreinasambandsins að nú verði ekki komist lengra nema með aðkomu ríkissáttasemjara að deilunni, til að skipuleggja og stýra áframhaldandi vinnu.“
Starfsgreinasambandið fer með umboð fyrir eftirtalin 16 aðildarfélög; AFL Starfsgreinafélag, Aldan stéttarfélag, Báran stéttarfélag, Drífandi stéttarfélag, Eining-Iðja, Framsýn stéttarfélag, Stéttarfélag Vesturlands, Stéttarfélagið Samstaða, Verkalýðsfélag Snæfellinga, Verkalýðsfélag Suðurlands, Verkalýðsfélag Vestfirðinga, Verkalýðsfélag Þórshafnar, Verkalýðsfélagið Hlíf, Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungarvíkur, Verkalýðs- og sjómannafélag Keflavíkur og nágrennis og Verkalýðs- og sjómannafélag Sandgerðis.
Verkföll í deiglunni
Fyrr í dag slitu Efling, VR, Verkalýðsfélag Akraness og Verkalýðsfélag Grindavíkur kjaraviðræðum sínum við Samtök atvinnulífsins.
Á vef Eflingar var í kjölfarið birt yfirlýsing vegna þessa þar sem segir að „verkafólk á Íslandi hefur of lengi þurft að þola láglaunastefnu og stjórnlausan ójöfnuð. Verkafólk hefur skapað góðæri síðustu ára með vinnu sinni. Atvinnurekendur hafa þó neitað að ganga að sanngjörnum kröfum Eflingar og samflotsfélaga. Verkfall er þaulreynd og lögvarin aðferð stéttarfélaga til að jafna hlut vinnandi fólks gagnvart atvinnurekendum.“