Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir að fullyrðingar Samtaka atvinnulífsins um að krafa verkalýðshreyfingarinnar feli í sér 60 til 85 prósent hækkun á öll laun sé „svo fjarstæðukenndur áróður að hann er varla svaraverður en hlýtur að opinbera sturlað viðhorf viðsemjenda okkar til kröfugerðarinnar og stöðunar á vinnumarkaði“. Þetta kemur fram í stöðuuppfærslu sem Ragnar birti á Facebook.
Tilboð SA til félagsmanna VR. 15.000 kr. Á laun undir 600.000 kr. Og 2,5% á laun umfram það. ATH. Ekki 20.000...
Posted by Ragnar Þór Ingólfsson on Friday, February 22, 2019
Þar segir hann að tilboð Samtaka atvinnulífsins til félagsmanna VR hafi falið í sér 15 þúsund króna mánaðarhækkun á laun undir 600 þúsund krónur og 2,5 prósent hækkun á laun umfram það. Fréttir um að tilboðið hafi verið upp á 20 þúsund krónur séu ekki réttar. Þá hafi fylgt með sérstöku fimm þúsund króna mánaðarleg hækkun á lægstu taxta, sem eru í dag 270.408 krónur.
Tiilboð SA til megin þorra félagsmanna VR felur í sér kaupmáttarrýrnun!
2,5% hækkun launa í 3,6% verðbólgu er ekki ábyrg nálgun í kjaraviðræðum!
15.000 kr. Hækkun á laun undir 600.000 eru 8.975 kr. Útborgað!
Leigufélögin eru byrjuð að hækka leigu um tugi þúsunda og dæmi er um einstæða móður sem fékk bréf frá Almenna leigufélaginu þar sem tilkynnt var um 20.000 kr. Hækkun á leigu í nýjum árs samningi. SA býður þessum félagsmanni VR 8.975 kr. upp í þann kostnað. Mismunurinn er 11.025kr. sem uppá vantar.
SA vill nálgast málin af meiri ábyrgð og býður félagsmönnum VR 2,5% á meðan laun bankastjóra Landsbankans hækkuðu um 82%.
SA vill nálgast málin af meiri ábyrgð og býður félagsmönnum VR 2,5% á meðan laun Alþingismanna og æðstu embættismanna hækkuðu um 45% og yfir.
SA vill nálgast málin af meiri ábyrgð og býður félagsmönnum VR 15.000 kr. á meðan laun framkvæmdastjóra SA munu hækka um 90.000 kr. Samkvæmt sama tilboði.
Stjórnvöld og SA tala um kólnun í hagkerfinu, ábyrgð og svigrúm á meðan laun bankastjóra Landsbankans hækka um 1.700.000 kr. Á mánuði, eða 82%, og þykir sú hækkun hófleg í núverandi árferði að mati stjórnenda bankans.
Í kröfugerð VR er sama krónutöluhækkun á alla og að lægstu laun hækki úr 300.000 kr. Í 425.000 kr á mánuði á þremur árum.
Fullyrðingar SA um að krafa okkar sé 60 til 85% á öll laun er svo fjarstæðukenndur áróður að hann er varla svaraverður en hlýtur að opinbera sturlað viðhorf viðsemjenda okkar til kröfugerðarinnar og stöðunar á vinnumarkaði.“
Í Fréttablaðinu í morgun var því haldið fram að þær kröfur sem Starfsgreinasambandið hafi sett fram í kjaraviðræðum sínum við Samtök atvinnulífsins feli í sér að laun meginþorra félagsmanna í aðildarfélögum sambandsins myndu hækka um tæplega 70 prósent til 85 prósent á næstu þremur árum. Þar var einnig haft eftir heimildum blaðsins að Efling stéttarfélag hefði haldið þessum kröfum til streitu í viðræðum sínum.
Efling, VR, Verkalýðsfélag Akraness og Verkalýðsfélag Grindavíkur slitu kjaraviðræðum sínum við Samtök atvinnulífsins í gær og undirbúningur verkfalla er nú hafinn.
Ragnar var gestur 21 á Hringbraut á miðvikudag. Hægt er að sjá stiklu úr þeim þætti hér að neðan: