Ragnar Þór: Fullyrðingar SA fjarstæðukenndur áróður sem opinbera „sturlað viðhorf“

Formaður VR segir að tilboð Samtaka atvinnulífsins til félagsins hafi falið í sér 15 þúsund króna mánaðarlega hækkun á laun undir 600 þúsund krónur. Það hafi falið í sér kaupmáttarrýrnun fyrir þorra félagsmanna.

Ragnar Þór Ingólfsson heldur ræðu 1. maí 2018
Auglýsing

Ragnar Þór Ing­ólfs­son, for­maður VR, segir að full­yrð­ingar Sam­taka atvinnu­lífs­ins um að krafa verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar feli í sér 60 til 85 pró­sent hækkun á öll laun sé „svo fjar­stæðu­kenndur áróður að hann er varla svara­verður en hlýtur að opin­bera sturlað við­horf við­semj­enda okkar til kröfu­gerð­ar­innar og stöð­unar á vinnu­mark­að­i“. Þetta kemur fram í stöðu­upp­færslu sem Ragnar birti á Face­book. 

Til­boð SA til félags­manna VR. 15.000 kr. Á laun undir 600.000 kr. Og 2,5% á laun umfram það. ATH. Ekki 20.000...

Posted by Ragnar Þór Ing­ólfs­son on Fri­day, Febru­ary 22, 2019

Þar segir hann að til­boð Sam­taka atvinnu­lífs­ins til félags­manna VR hafi falið í sér 15 þús­und króna mán­að­ar­hækkun á laun undir 600 þús­und krónur og 2,5 pró­sent hækkun á laun umfram það. Fréttir um að til­boðið hafi verið upp á 20 þús­und krónur séu ekki rétt­ar. Þá hafi fylgt með sér­stöku fimm þús­und króna mán­að­ar­leg hækkun á lægstu taxta, sem eru í dag 270.408 krón­ur.

Auglýsing
Ragnar bendir á að verð­bólgu­spá fyrir árið í ár sé milli 3,4 til 3,6 pró­sent. Á meðan lýð­skrumarar og aðrir lobbí­istar sér­hags­muna tala um nútíma hag­fræði, kulnun í hag­kerf­inu eða skrum­skæla kröfu­gerðir verka­lýðs­hreyf­ing­ar­innar eins og kom fram í mál­flutn­ingi SA í gær þá er rétt að benda á nokkrar stað­reynd­ir.

Tiil­boð SA til megin þorra félags­manna VR felur í sér kaup­mátt­arrýrn­un!

2,5% hækkun launa í 3,6% verð­bólgu er ekki ábyrg nálgun í kjara­við­ræð­um!

15.000 kr. Hækkun á laun undir 600.000 eru 8.975 kr. Útborg­að!

Leigu­fé­lögin eru byrjuð að hækka leigu um tugi þús­unda og dæmi er um ein­stæða móður sem fékk bréf frá Almenna leigu­fé­lag­inu þar sem til­kynnt var um 20.000 kr. Hækkun á leigu í nýjum árs samn­ingi. SA býður þessum félags­manni VR 8.975 kr. upp í þann kostn­að. Mis­mun­ur­inn er 11.025kr. sem uppá vant­ar.

SA vill nálg­ast málin af meiri ábyrgð og býður félags­mönnum VR 2,5% á meðan laun banka­stjóra Lands­bank­ans hækk­uðu um 82%.

SA vill nálg­ast málin af meiri ábyrgð og býður félags­mönnum VR 2,5% á meðan laun Alþing­is­manna og æðstu emb­ætt­is­manna hækk­uðu um 45% og yfir.

SA vill nálg­ast málin af meiri ábyrgð og býður félags­mönnum VR 15.000 kr. á meðan laun fram­kvæmda­stjóra SA munu hækka um 90.000 kr. Sam­kvæmt sama til­boði.

Stjórn­völd og SA tala um kólnun í hag­kerf­inu, ábyrgð og svig­rúm á meðan laun banka­stjóra Lands­bank­ans hækka um 1.700.000 kr. Á mán­uði, eða 82%, og þykir sú hækkun hóf­leg í núver­andi árferði að mati stjórn­enda bank­ans.

Í kröfu­gerð VR er sama krónu­tölu­hækkun á alla og að lægstu laun hækki úr 300.000 kr. Í 425.000 kr á mán­uði á þremur árum.

Full­yrð­ingar SA um að krafa okkar sé 60 til 85% á öll laun er svo fjar­stæðu­kenndur áróður að hann er varla svara­verður en hlýtur að opin­bera sturlað við­horf við­semj­enda okkar til kröfu­gerð­ar­innar og stöð­unar á vinnu­mark­að­i.“

Í Frétta­blað­inu í morgun var því haldið fram að þær kröfur sem Starfs­greina­sam­bandið hafi sett fram í kjara­við­ræðum sínum við Sam­tök atvinnu­lífs­ins feli í sér að laun meg­in­þorra félags­manna í aðild­ar­fé­lögum sam­bands­ins myndu hækka um tæp­lega 70 pró­sent til 85 pró­sent á næstu þremur árum. Þar var einnig haft eftir heim­ildum blaðs­ins að Efl­ing stétt­ar­fé­lag hefði haldið þessum kröfum til streitu í við­ræðum sín­um.

Efl­ing, VR, Verka­lýðs­­fé­lag Akra­­ness og Verka­lýðs­­fé­lag Grinda­víkur slitu kjara­við­ræðum sínum við Sam­tök atvinn­u­lífs­ins í gær og und­ir­bún­ingur verk­falla er nú haf­inn. 

Ragnar var gestur 21 á Hring­braut á mið­viku­dag. Hægt er að sjá stiklu úr þeim þætti hér að neð­an: 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent