Tilboð Loftleiða, dótturfélags Icelandair, í 51 prósent hluta í ríkisflugfélaginu Cabo Verde Airlines á Grænhöfðaeyjum, hefur verið samþykkt.
Undirskrift kaupsamnings er áætluð á morgun föstudaginn 1. mars, segir í tilkynningu frá Icelandair til kauphallar.
„Icelandair Group telur að miklir möguleikar séu fyrir hendi til að byggja félagið upp sem öflugt tengiflugfélag með Grænhöfðaeyjar sem tengimiðstöð á milli heimsálfa. Mun sú reynsla og þekking sem orðið hefur til í sams konar rekstri Icelandair þar með nýtast Cabo Verde Airlines,“ segir í tilkynningunni.
Loftleiðir Icelandic, sem er dótturfélag Icelandair Group, er eigandi að 70 prósent hlut í Loftleiðum Cabo Verde en aðrir hluthafar eiga 30 prósent. „Kaupin hafa óveruleg áhrif á reikningsskil Icelandair Group þar sem Cabo Verde Airlines mun ekki verða hluti af samstæðureikningi Icelandair Group. Eignarhluturinn verður færður á meðal hlutdeildarfélaga,“ segir í tilkynningu.
Eins og greint var frá fyrr í dag hækkaði virði Icelandair umtalsvert í dag á markaði, eða um rúmlega 7,5 prósent. Virði félagsins er nú um 40 milljarðar króna, en félagið hefur gengið í gegnum erfiðleika í rekstri að undanförnu, og tapaði félagið 6,8 milljörðum króna á fjórða ársfjórðungi í fyrra.