Rekstrartekjur Félagsbústaða jukust um tæp 10 prósent milli ára

Rekstrartekjur Félagsbústaða námu rúmum 4 milljörðum á árinu 2018. Aukning tekna skýrist af fjölgun leiguíbúða en félagið leigir nú út tæplega 2600 íbúðir í Reykjavík og vegna vísitölubundinnar hækkunar leiguverðs.

img_4583_raw_0710130529_10191335034_o.jpg
Auglýsing

Rekstr­ar­tekjur Félags­bú­staða námu rúmum 4 millj­örðum á árinu 2018 og juk­ust um tæp 10 pró­sent milli ára. Aukn­ing tekna skýrist af fjölgun leigu­í­búða á árinu 2018 en félagið leigir nú út tæp­lega 2600 íbúðir í Reykja­vík og vegna vísi­tölu­bund­innar hækk­unar leigu­verðs um 2,8 pró­sent á árinu. Rekstr­ar­gjöld hækk­uðu um 9 pró­sent milli áranna 2017 og 2018.

Þetta kemur fram í árs­reikn­ingi félags­ins fyrir árið 2018 sem stað­festur var af stjórn í gær.

Í til­kynn­ingu frá félag­inu kemur fram að sjóð­streymi Félags­bú­staða sýni að hand­bært fé frá rekstri sé 558 millj­ónir króna sam­an­borið við 653 millj­ónir árið áður. Afborg­anir lána nemi 641 millj­ónum króna og heilda­skuldir 41.052 millj­ónum króna. Þær hafi hækkað um 3.643 millj­ónir á árinu en Félags­bú­staðir keyptu fast­eignir fyrir 2.972 millj­ónir króna og vörðu 935 millj­ónum í við­hald á fast­eignum sínum á árinu.

Auglýsing

Afkoma árs­ins fyrir fjár­magnsliði, eða EBIT, nam 1.816 millj­ónum króna eða 45,1 pró­sent af rekstr­ar­tekj­um. Mats­hækkun fjár­fest­inga­eigna fyrir árið nam 2.942 millj­ónum króna og hagn­aður árs­ins 2.384 millj­ónum króna.

Virði fjár­fest­inga­eigna í lok árs­ins er 83.203 millj­ónir krónur og eigið fé er 42.641 millj­ón­ir. Eig­in­fjár­hlut­fall í lok er 51 pró­sent og vaxta­ber­andi skuldir í lok árs nema 37.790 millj­ónum króna.

Bók­færður hagn­aður af rekstri Félags­bú­staða á árinu 2018 nam 2.384 millj­ónum króna og er hann allur til­kom­inn vegna hækk­unar á virði eigna sem tekur mið af fast­eigna­mati, segir í til­kynn­ing­unni.

Félagið er stærsti eig­andi félags­legs hús­næðis á land­inu og um leið stærsta leigu­fé­lag lands­ins. Leigu­í­búðum í eigu Félags­bú­staða í Reykja­vík hefur fjölgað um 400 frá árinu 2014 en í lok árs 2018 áttu Félags­bú­staðir 2.618 íbúð­ir. Stefnt er að því að þær verði orðnar 3.170 árið 2022.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent