Bjarni: Nýr dómsmálaráðherra komi úr ríkisstjórninni eða úr þingflokki Sjálfstæðisflokksins

Ríkisstjórnarflokkarnir eru samstíga í ríkisstjórnarsamstarfinu, segir Bjarni Benediktsson. Hann segist virða ákvörðun dómsmálaráðherra um að hætta.

Bjarni Benediktsson
Bjarni Benediktsson
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son, for­maður Sjálf­stæð­is­flokks­ins og fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, seg­ist bera virð­ingu fyrir ákvörðun Sig­ríðar Á. And­er­sen, dóms­mála­ráð­herra, um að stíga til hliðar sem dóms­mála­ráð­herra. 

Hún sé með þessu að segja af sér sem ráð­herra og muni nýr ráð­herra taka við ráðu­neyt­inu, að loknum rík­is­ráðs­fundi.

Hann sagð­ist vera þeirrar skoð­unar að ann­að­hvort myndi annar ráð­herra í rík­is­stjórn­inni gegn ákvörðun dóms­mála­ráð­herra, eftir að Sig­ríður hefur hætt sem ráð­herra, eða að nýr dóms­mála­ráð­herra komi úr þing­flokki Sjálf­stæð­is­flokks­ins. 

Þetta kom fram í sam­tali Bjarna við blaða­menn á Alþingi eftir þing­flokks­fund­inn.

Auglýsing

Bjarni sagð­ist líta svo á að nið­ur­staða Mann­rétt­inda­dóm­stóls Evr­ópu, í hinu svo­nefnda Lands­rétt­ar­máli, hefði komið honum í „opna skjöldu“ og það væri umhugs­un­ar­sefni hvort dóm­stól­inn væri far­inn að „stíga yfir línu“ með þeirri gagn­rýni á íslenska stjórn­sýslu sem birt­ist í dómn­um. Hæsti­réttur væri æðsti dóm­stóll Íslands, ekki Mann­rétt­inda­dóm­stóll Evr­ópu.

Sam­kvæmt nið­ur­stöðu Mann­rétt­inda­dóm­stóls­ins braut Ísland gegn 6. grein mann­rétt­inda­sátt­­mála Evr­­ópu sem fjallar um rétt til rétt­látrar máls­­með­­­ferðar fyrir dómi í máli gegn manni sem dæmdur var í 17 mán­aða fang­elsi í Lands­rétti. Ástæðan er sú að mað­­ur­inn fékk ekki rétt­láta máls­­með­­­ferð fyrir Lands­rétti vegna þess að Arn­­fríður Ein­­ar­s­dótt­ir, sem er dóm­­ari við rétt­inn, hafi ekki verið skipuð í hann með lög­­­mætum hætt­i.

Í dómnum segir meðal ann­ars: „Ferlið varð til þess að valda skaða á því trausti sem dóm­stóll í lýð­ræð­is­legu sam­fé­lagi þarf að vekja hjá almenn­ingi og braut í bága við það grund­vall­ar­at­riði að dóm­stóll sé lög­leg­ur, eina af meg­in­reglum rétt­ar­rík­is­ins.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent