Virði Icelandair rýkur upp í fyrstu viðskiptum

Icelandair Group er eina félagið í Kauphöllinni sem hækkar í virði í fyrstu viðskiptum dagsins. Arion banki, helsti lánardrottinn WOW air, lækkar mest.

icelandair_737MAX_big2.jpg
Auglýsing

Hluta­bréf í Icelandair Group hafa hækk­uðu um 16,05 pró­sent í fyrstu við­skiptum í morg­un, en hækkun á bréfum félags­ins þegar þetta er skrifað nemur 10,47 pró­sent­um. Á sama tíma hafa bréf í Arion banka lækkað um 3,22 pró­sent, eða mest allra félaga í Kaup­höll Íslands á fyrstu metrum við­skipta dags­ins.

Ástæðan er staða WOW air, en í gær var til­kynnt að Indigo Partners hefðu slitið við­ræðum um aðkomu að flug­fé­lag­inu og að við­ræður um aðkomu Icelandair Group að því hefðu haf­ist. Arion banki er helsti lán­ar­drott­inn WOW air.

Í til­­kynn­ingu sem Icelandair Group sendi frá sér til Kaup­hallar Íslands í gær­kvöldi sagði að í kjöl­far til­­kynn­ingar frá WOW air um slit við­ræðna við Indigo Partners hafi stjórn Icelandair Group sam­­þykkt að hefja við­ræður við WOW air um aðkomu að rekstri félags­­ins. „Ef af verður mun aðkoman byggja á sjón­­­ar­miði sam­keppn­is­réttar um fyr­ir­tæki á fallandi fæti. Við­ræð­­urnar fara fram í sam­ráði við stjórn­­völd.“

Auglýsing

Rík­­is­­stjórn Íslands sendi frá sér til­­kynn­ingu vegna máls­ins á nán­ast sama tíma og til­kynn­ingar flug­fé­lag­anna tveggja birt­ust. Þar sagði: „Stjórn­­völd hafa síð­­asta árið fylgst með erf­ið­­leikum í alþjóð­­legum flug­­­rekstri og sam­keppn­is­­stöðu íslenskra flug­­­fé­laga í því ljósi. Eig­endur WOW air hafa um nokk­­urra mán­aða skeið leitað leiða til að tryggja rekstur félags­­ins og hafa átt við­ræður við fjár­­­festa, flug­­rek­endur og aðra hag­hafa. Hingað til hafa þær við­ræður ekki skilað þeim árangri sem eig­andi félags­­ins stefndi að. ­Rík­­is­­stjórnin mun áfram fylgj­­ast grannt með fram­vind­unni og bindur vonir við að við­ræður félag­anna muni skila far­­sælli nið­­ur­­stöð­u.“

Hávær orðrómur hafði verið uppi um það síð­ustu daga að við­ræðum Indigo Partners við WOW air væri lokið þó að form­lega hefði ekki verið til­kynnt um það og flestir við­mæl­endur Kjarn­ans sem starfa á mark­aði reikn­uðu með að síð­asta björg­un­ar­til­raunin sem gerð yrði með WOW air yrði alltaf með ein­hverjum hætti í fangi Icelanda­ir, og að öllum lík­indum yrði leitað til stjórn­valda eftir lið­sinni.

Í gær hækk­uðu hluta­bréf í Icelandair Group um 7,77 pró­sent í 544 millj­óna króna við­skipt­um. Á sama tíma lækk­uðu bréf í Arion banka um 4,24 pró­sent í 125 millj­óna króna við­skipt­um. Því virð­ast þátt­tak­endur á mark­aði hafa verið byrj­aðir að veðja á þessa útkomu áður en að greint var frá henni form­lega með til­kynn­ing­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent