Forsætisráðuneytinu hafa borist sextán umsóknir um embætti seðlabankastjóra sem auglýst var laust til umsóknar 20. febrúar síðastliðinn en frestur til umsóknar rann út á miðnætti 25. mars síðastliðinn.
Þetta kemur fram í frétt forsætisráðuneytisins.
Sérstök hæfnisnefnd verður skipuð til þess að fara yfir umsóknirnar og meta hæfni þeirra.
Auglýsing
Umsækjendur um embætti seðlabankastjóra:
- Arnór Sighvatsson, ráðgjafi seðlabankastjóra
- Ásgeir Jónsson, dósent og forseti hagfræðideildar Háskóla Íslands
- Ásgeir Brynjar Torfason, lektor við Háskóla Íslands
- Benedikt Jóhannesson, fyrrv. fjármála- og efnahagsráðherra
- Gunnar Haraldsson, hagfræðingur
- Gylfi Arnbjörnsson, hagfræðingur
- Gylfi Magnússon, dósent
- Hannes Jóhannsson, hagfræðingur
- Jón Danielsson, prófessor
- Jón G. Jónsson, forstjóri bankasýslu ríkisins
- Salvör Sigríður Jónsdóttir, nemi
- Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri
- Sturla Pálsson, framkvæmdastjóri markaðs-, viðskipta- og fjarstýringar í Seðlabanka Íslands
- Vilhjálmur Bjarnason, lektor
- Þorsteinn Þorgeirsson, sérstakur ráðgjafi á skrifstofu seðlabankastjóra
- Katrín Ólafsdóttir, lektor
Uppfært: Upphaflega kom fram að fimmtán hefðu sótt um stöðu seðlabankastjóra, en þau eru sextán. Nafn Katrínar Ólafsdóttur var ekki á upphaflegum lista sem birtist á vef stjórnvalda, en úr því hefur verið bætt nú.