Umræðan á Klaustri ekki einkasamtal

Ráðgefandi siðanefnd hefur fjallað um Klausturmálið svonefnda.

Þingmenn - Klaustur bar
Auglýsing

Siða­nefnd Alþing­is, sem hefur ráð­gef­andi hlut­verk, hefur skilað for­sætis­nefnd Alþingis áliti vegna Klaust­urs­máls­ins svo­kall­aða. 

Sex þing­menn, sem eru allir í Mið­flokknum eftir að Ólafur Ísleifs­son og Karli Gauti Hjalta­son gengu til liðs við hann eftir brott­rekstur úr Flokki fólks­ins, voru þá teknir upp þar sem þeir ræddu meðal ann­ars með fúk­yrðum og kvenn­fyr­ir­litn­ingu um annað fólk á þingi, meðal ann­ars Lilju Alfreðs­dótt­ur, mennta- og menn­ing­ar­mála­ráð­herra.

Gunnar Bragi Sveins­son, þing­maður Mið­flokks­ins, kall­aði hana meðal ann­ars „hel­vítis tík“ í fyrr­nefndum sam­ræðum sex­menn­ing­ana. Auk Ólafs, Karls Gauta og Gunn­ars Braga, tóku Sig­mundur Davíð Gunn­laugs­son, for­maður Mið­flokks­ins, Berg­þór Óla­son, þing­maður Mið­flokks­ins, og Anna Kol­brún Árna­dótt­ir, þing­maður Mið­flokks­ins, þátt í umræð­un­um.

Auglýsing

Stein­unn Þóra Árna­dóttir og Har­aldur Bene­dikts­son, sér­stakir vara­for­setar Alþingis vegna máls­ins, ósk­uðu eftir álit­inu. Hefur nefndin meðal ann­ars það hlut­verk að meta hvort málið og hegðun þing­manna heyri undir siða­reglur Alþing­is.

„Al­þing­is­­menn eru op­in­ber­ar per­­són­­ur, sú hátt­­semi sem um ræðir átti sér stað á op­in­ber­um vett­vangi og teng­ist mál­um sem hafa verið áber­andi í þjóð­fé­lags­um­­ræð­unni. Þar sem hátt­ernið varðar al­­menn­ing verður ekki litið á þau at­vik sem hér um ræðir sem einka­­sam­tal,“ seg­ir í áliti meiri hluta siða­nefnd­ar sem birt hefur verið á vef Alþingis.

Er það mat meiri­hluta nefnd­ar­innar að sam­ræð­urnar sem fóru fram á barnum Klaustri á milli sex þing­manna Mið­flokks­ins og Flokks fólks­ins, á þeim tíma sem sam­ræð­urnar áttu sér stað,  falli undir gild­is­svið siða­reglna þings­ins. 

Upp­fært: Álitið er ekki lengur aðgengi­legt á vef Alþing­is.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent