Efling – stéttarfélag hefur aflýst boðuðum verkfallsaðgerðum 28. og 29. mars sem hefjast áttu innan örfárra klukkutíma, eins og greint var frá í dag, en það sama gildir um VR.
Í tilkynningu segir að það hafi reynst vera til staða viðræðugrundvöllur. „Efling aflýsir aðgerðunum í ljósi þess að viðræðugrundvöllur hefur loksins reynst vera til staðar af hálfu Samtaka atvinnulífsins. Þetta kom fram í viðræðum SA við formenn samflotsfélaga í Karphúsinu síðdegis í dag,“ segir í tilkynningu Eflingar.
Tekið er fram í tilkynningunni að verkfallsaðgerðir haf skilað árangri. „Efling þakkar félagsmönnum, starfsfólki og sjálfboðaliðum fyrir þá miklu vinnu sem þeir hafa lagt í undirbúning og framkvæmd verkfallsaðgerða, sem nú hafa skilað takmörkuðum en þýðingarmiklum árangri,“ segir í tilkynningu Eflingar.
Aðrir þættir boðaðrar verkfallsáætlunar félagsins standa, en næstu boðuðu sólarhringsverkföll félagsins eru næstkomandi miðvikudag, fimmtudag og föstudag. Strætisvagnar í rekstri Kynnisferða hefja einnig háannatímaverkföll á mánudaginn í næstu viku. „Efling biður félagsmenn að fylgjast vel með fréttum og tilkynningum yfir helgina,“ segir í tilkynningu Eflingar.
Samkvæmt vef félagsins eru félagsmenn í Eflingu um 27 þúsund.