Verkfall strætisvagnabílstjóra hafið – Fundað á ný í dag

Samningafundi sex verkalýðsfélaga og Samtaka atvinnulífsins stóð yfir fram á ellefta tímann í gærkvöldi en var þá frestað til klukkan hálftíu í dag. Verkfall strætisvagnastjóra Kynnisferða hófst klukkan sjö í morgun.

Ragnar Þór, Sólveig Anna og Vilhjálmur Birgis
Auglýsing

Samn­inga­fundi verka­lýðs­fé­lag­anna Efl­ing­ar, VR, VLFA, VLFG, Fram­sýnar og LÍV við Sam­tök atvinnu­lífs­ins lauk á ell­efta tím­anum í gær­kvöld í hús­næði Rík­is­sátta­semj­ara. Deilu­að­ilar hafa fundið stíft alla helg­ina en nýr fundur er boð­aður í dag klukkan hálf­tíu. Vinnu­stöðv­anir strætó­bíl­stjóra í Efl­ingu sem vinna fyrir Kynn­is­ferða hófust því í morg­un. Akstur á tíu leiðum fellur niður milli klukkan 7 og 9 á morgn­ana og milli 16 og 18 síð­deg­is.

Aðgerð­irnar eiga standa út apr­íl­mán­uð­inn

Verk­fall hjá bíl­stjórum Almenn­ings­vagna Kynn­is­ferða, sem eru félags­menn í Efl­ingu, hófst klukkan sjö í morg­un­. Verk­fallið raskar ferðum á tíu strætó­leið­um, 12, 14, 15, 16, 17, 21, 24, 28, 35 og 36. Bíl­stjórar við­kom­andi leiða leggja niður störf á milli sjö og níu á morgn­ana og svo aftur á milli fjögur og sex síð­deg­is. Aðgerð­irnar standa út mán­uð­inn ef ekki nást samn­ing­ar. Talið er aðgerð­irnar muni hafa áhrif á um 15 þús­und far­þega Strætó.

Auglýsing

Þriggja daga verk­fall á mið­viku­dag

Næstu fyr­ir­hug­uðu verk­föll eru hjá hót­el­starfs­fólki og hóp­bif­reiða­stjórum hjá VR og Efl­ingu sem leggja niður störf í þrjá daga frá mið­viku­degi ef ekki tekst að semja. Fyrsta þriggja daga verk­fall á hót­elum og hjá rútu­fyr­ir­tækjum í apríl er því boðað dag­ana 3. til 5. apr­íl. Þriggja daga verk­föll hafa einnig verið boðuð dag­ana 9. til 11. apr­íl, 15. til 17. apríl og 23. til 25. apr­íl. Ef ekki næst að semja er svo ótíma­bundið verk­fall boðað frá og með 1. maí og stendur það ótíma­bundið þar til samn­ingar nást.

Kjara­samn­ingar á opin­berum mark­aði runnu út í nótt

Kjara­samn­ingar flestra stétt­ar­fé­laga á opin­berum mark­aði runnu út á mið­nætti. Drífa Snædal, for­maður ASÍ, sagði í sam­tali við Morg­un­blaðið í gær­kvöldi að hún búist ekki við því að það setji aukna pressu á við­semj­endur á almenna mark­aðnum í sínum við­ræð­um. „Nei, ég sé það ekki endi­lega. Þetta eru sjálf­stæðir samn­ingar og kjara­samn­inga­gerðin hefur ekki verið að bland­ast sam­an. Það hefur verið sam­starf varð­andi við­ræður við stjórn­völd varð­andi upp­lýs­inga­miðl­un, en ekki í kjara­samn­ing­um,“ sagði Drífa.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent