Fundi frestað - Verið að reyna til þrautar að ná samkomulagi

Aðilar vinnumarkaðarins reyna nú til þrautar að ná saman um kaup og kjör. Forsætisráðherra segir að aðkoma stjórnvalda sé veruleg og eigi að geta liðkað fyrir samkomulagi á vinnumarkaði.

Katrín Jakobsdóttir
Auglýsing

Blaða­manna­fundi, þar sem kynna átti lífs­kjara­samn­ing stjórn­valda og aðila vinnu­mark­að­ar­ins, var frestað á síð­ustu stundu í dag, en hann hafði verið boð­aður 18:30 í Ráð­herra­bú­staðnum við Tjörn­ina. 

Ástæðan var sú að aðilar vinnu­mark­að­ar­ins, það er stétt­ar­fé­lög og Sam­tök atvinnu­lífs­ins, reyna nú til þrautar að klára samn­inga.

Katrín Jak­obs­dótt­ir, for­sæt­is­ráð­herra, sagði í við­tölum við Stöð 2 og RÚV, að vinnan við að klára þessi mál, væri nú í gangi og nú sé verið að reyna að ná saman um þau atriði sem útaf standa, en hún sagð­ist hafa miklar vænt­ingar um að það næð­ist að klára samn­inga þar sem mið væri tekið af því að samn­ingar væru í gildi til 1. nóv­em­ber 2022, líkt og kom fram í til­kynn­ingu frá Rík­is­sátta­semj­ara, Bryn­dísi Hlöðvers­dótt­ur, á öðrum tím­anum í nótt.

Auglýsing

Ekki hefur komið fram í nákvæm­is­at­riðum hver eru helstu atriðin í samn­ing­un­um, enda mun loka­nið­ur­staðan í við­ræð­unum leiða það í ljós. 

Katrín sagði í við­tali við Stöð 2 og RÚV að aðkoma stjórn­valda tæki mið af þeim til­lögum sem komið hafa fram, þar á meðal um að lækka skatta fyrir þá lægst laun­uðu, tryggja meira fram­boð af hús­næði og bjóða upp á betri lausnir fyrir fyrstu íbúð­ar­kaup­end­ur, hækka barna­bætur og auka við fæð­ing­ar­or­lof, svo eitt­hvað sé nefnt af því sem Katrín nefndi í við­tölum við Stöð 2 og RÚV í kvöld. 

Kjarn­inn hefur verið í sam­bandi við fólk úr röðum félaga sem nú sitja við samn­inga­borðið í dag, og er mikil hreyf­ing á málum í átt til lausn­ar, sam­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans. Búast má við því að það dragi til tíð­inda, með samn­ing­um, á næsta sól­ar­hring.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent