Forstjóri Isavia hættur

Björn Óli Hauksson, sem stýrt hefur ríkisfyrirtækinu Isavia í áratug, er skyndilega hættur störfum. Hann hættir samstundis.

Björn Óli Hauksson.
Björn Óli Hauksson.
Auglýsing



Björn Óli Hauks­son, for­stjóri Isa­via, hef­ur sagt starfi sínu lausu. Hann lætur nú þegar af störfum sam­kvæmt til­kynn­ingu. Isa­via á og rekur flug­­vell­ina í land­inu og er að öllu leyti í eigu íslenska rík­is­ins.

Skipt var um stjórn­ar­for­mann í fyr­ir­tæk­inu í síð­asta mán­uði þegar Orri Hauks­son, for­stjóri Sím­ans, tók við af Ingi­mundi Sig­ur­páls­syni.

Auglýsing

Í til­kynn­ing­unni segir Björn Óli að hann hafi nú starfað hjá Isa­via í ára­tug og að sá tími hafi verið við­burða­ríkur og skemmti­leg­ur. „Ég hef fengið að taka þátt í upp­bygg­ingu á Isa­via sem hefur verið ein­stakt. Einnig hef ég fengið tæki­færi til að vinna með frá­bæru starfs­fólki í umhverfi þar sem áskor­anir eru og hafa verið mikl­ar. Ég er þakk­látur fyrir það hversu vel hefur tek­ist til og nú er að hefj­ast enn einn kafl­inn í sögu Isa­via. Í því ljósi tel ég að nú sé góður tími fyrir nýtt fólk til að taka við kefl­in­u.”

Orri Hauks­son segir á sama stað að stjórnin virði ákvörðun Björns Óla um að nú sé góður tíma­­punkt­ur til að láta af störf­­um. Haf­ist verði handa við að ráða nýjan for­stjóra. Fram að því munu Elín Árna­dótt­ir, aðstoð­ar­for­stjóri, og Svein­björn Ind­riða­son, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála­sviðs, ann­ast dag­legan rekstur félags­ins.

Skuld WOW air og launa­mál

Isa­via hefur verið mikið til umfjöll­unar und­an­far­ið, meðal ann­ars vegna vand­ræða WOW air sem end­uðu með gjald­þroti í síð­asta mán­uði. Isa­via hafði veitt WOW air umtals­vert svig­rúm vegna greiðslu á lend­ing­ar­gjöldum og voru þær skuldir vel á annan millj­arð króna hið minnsta. Vegna þeirra gerði Isa­via kröfu um að ein þeirra véla sem WOW air var með á leigu væri alltaf stað­sett á Kefla­vík­ur­flug­velli. Sú vél hefur síðan verið notuð til að reyna að inn­heimta skuld WOW air við Isa­via. Umburð­ar­lyndi Isa­via gagn­vart WOW air var harð­lega gagn­rýnt af ýmsum fyrir að vera and­stætt eðli­legum sam­keppn­is­sjón­ar­mið­um.

Launa­mál Björns Óla hafa líka verið umtals­vert til umfjöll­unar sið­ustu miss­eri. Kjarn­inn greindi frá því fyrr á þessu ári að heild­­­ar­­­laun ­­Björns Óla hefðu hækkað um 43,3 pró­­sent frá því að ákvörðun launa var færð frá kjara­ráði árið 2017 til stjórn­­­ar ­­fyr­ir­tæk­is­ins á ný. Launin hækk­uðu úr 1.748.000 krónum á mán­uði í nóv­­em­ber 2017 í 2.504.884 í maí 2018.  

Þetta kom fram í svari Isa­vi­a við fyr­ir­­­spurn fjár­­­mála- og efna­hags­ráðu­­neyt­is­ins um hvernig fyr­ir­tækið hefði brugð­ist við til­­­mælum sem beint var til fyr­ir­tækja í rík­­i­s­eigu í jan­úar 2017 er varðar launa­á­kvarð­­anir og starfs­­kjör fram­­kvæmda­­stjóra. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent