Inga Sæland, þingkona og formaður Flokks fólksins, hefur sent frá sér yfirlýsingu þar sem hún gagnrýnir umfjöllun Ríkisútvarpsins um frumvarp heilbrigðisráðherra um þungunarrof. „Ríkisútvarpið sem á að vera vettvangur skoðanaskipta og umræðu í samfélagi okkar hefur brugðist þeirri skyldu sinni að fjalla um nýtt fóstureyðingafrumvarp heilbrigðisráðherra. Nánast engin samfélagsumræðu hefur farið fram um þetta mál þó ljóst sé að það er bæði viðkvæmt og afar umdeilt,“ segir Inga Sæland í yfirlýsingunni.
Fordæmir vinnubrögð fréttastofu
Í yfirlýsingunni gagnrýnir Inga jafnframt sjónvarpsviðtal RÚV við konu sem gekkst undir þungunarrof á tuttugustu og annarri viku meðgöngu eftir að fóstrið greindist með alvarlegt tilfelli vatnshöfuðs. „Í kvöldfréttum gærdagsins, kvöldið áður en lokaatkvæðagreiðsla í þessu erfiða og viðkvæma máli fer fram á þingi, kaus fréttastofa Ríkisútvarpsins að senda út sjónvarpsviðtal við móður barns sem hafði séð sig tilneydda til að fara í fóstureyðingu. Þarna kaus fréttastofan að fjalla um jaðartilfelli harms og sársauka í því skyni að búa til réttlætingu fyrir því að skilyrðislaust verði heimilt að eyða fóstrum allt til fram að 23. viku meðgöngu,“ segir í yfirlýsingunni.
Jafnframt gagnrýnir hún RÚV fyrir að fjalla ekki um önnur tilfelli. „Fréttastofan hefur aldrei á neinum tímapunkti reynt að varpa ljósi á önnur tilfelli ljóss og gleði þar sem fyrirburar hafa lifað og vaxið upp sem heilbrigð börn. Í síðustu viku sendi ég fyrir hvatningu og með samþykki foreldra öllum fjölmiðlum eitt slíkt dæmi með ljósmyndum. Fréttastofa Ríkisútvarpsins sá enga ástæðu til að fjalla um það.“
Þá segir hún að henni hafi ekki verið gefinn kostur á að svara þeim „ásökunum“ sem fram komu í viðtalinu. „Fréttastofa Ríkisútvarpsins hefur ekki gefið mér kost á neinu tækifæri til að svara fyrir þá ásökun sem kom fram í ofangreindu sjónvarpsviðtali í gærkvöldi, að konan hefði verið kölluð morðingi. Í þessari frétt var hins vegar með ísmeygilegu myndmáli augljóslega gefið til kynna að ég væri sek um að hafa látið slík orð falla. Það hef ég aldrei gert. “
Að lokum segir Inga að með þessari yfirlýsingu fordæmi hún vinnubrögð fréttastofu Ríkisútvarpsins.