Verður Ísland með í stórhuga innviðaáætlun Kínverja?

Sendiherra Kína á Íslandi segir að mikill áhugi sér hjá íslensku atvinnulífi að taka þátt í innviðaætlun Kínverja.

kínann.jpg
Auglýsing

Jin Zhi­jian sendi­herra Kína á Íslandi segir að Íslandi standi til boða að vera með í gríð­ar­lega umfangs­mik­illi inn­viða­á­ætlun Kín­verja, Belti og Braut, sem nær frá Asíu til Evr­ópu. 

Umfang hennar nemur á við 10 falda Mars­hall áætlun Banda­ríkj­anna eftir seinni heim­styrj­öld­ina, og tekur til upp­bygg­ingar á ýmsum innvið­um, t.d. á sviði orku og sam­gangna, og alþjóða­sam­starfs í víðum skiln­ing­i. 

Þá er mik­ill áhugi hjá íslenskum fyr­ir­tækjum á því að tengj­ast áætl­un­inni, til dæmis með opnun tæki­færa inn á ný mark­aðs­svæði.

Auglýsing

Þetta kom fram í ítar­legu við­tali við Zhi­jian í þætt­inum Ísland og umheim­ur­inn, sem er á dag­skrá Hring­braut­ar.



Zhi­jian segir meðal ann­ars að Kín­verjar hafi átt frum­kvæði að áætl­un­inni, og unnið að henni frá 2013, en um 80 þjóðir hafa sam­þykkt að taka þátt í henni með ein­hverjum hætt­i. 

Belti og Braut hefur verið gagn­rýnd nokk­uð, meðal ann­ars fyrir það að Kín­verjar séu með áætl­un­inni að auka áhrif sín til muna á alþjóða­vett­vangi, en Zhi­jian gefur lítið fyrir það.

„Meg­in­til­gangur þess er að koma á kerfi sem gæti verið mik­il­vægur rammi fyrir alþjóð­lega sam­vinnu og myndi hvetja til sam­eig­in­legrar fram­þró­un­ar. Þetta frum­kvæði nær til fimm lyk­ils­viða: Það er stefnu­mörk­un­ar, inn­viða, við­skipta, fjár­mála og að tengja fólk sam­an. Það má segja þetta fimm teng­ingar á fimm lyk­ilsvið­um. Þetta stendur einnig fyrir opna, hreina og græna þró­un, sem byggir á nánu sam­ráði, sam­eig­in­legu fram­lagi og ávinn­ingi allra. Þetta var gert að frum­kvæði Kína,“ segir sendi­herr­ann meðal ann­ars í við­tal­inu.

Ekki hefur verið ákveðið enn með þátt­töku Íslands í áætl­un­inni, en Zhi­jian seg­ist reikna með ákvörðun um málið innan tíð­ar. 

Ísland var einng stofn­að­ila Inn­viða­fjár­fest­inga­banka Asíu (AII­B), og hefur aukið umfang við­skipta­sam­bands við Kína, meðal ann­ars með frí­versl­un­ar­samn­ingi og auknu sam­bandi á svæði við­skipta.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent