Vonast eftir frjálslyndri ríkisstjórn eftir næstu kosningar

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir segir að núverandi ríkisstjórn sé síðasta vígi gamla flokkakerfisins. Skýrustu víglínurnar á Alþingi í dag séu á milli frjálslyndis og íhaldssemi.

Þórhildur Sunna Ævarsdóttir
Auglýsing

„Ég held að núver­andi rík­is­stjórn sé síð­asta vígi gamla flokka­kerf­is­ins.“

Þetta segir Þór­hildur Sunna Ævars­dótt­ir, þing­flokks­for­maður Pírata, um stöð­una í íslenskum stjórn­málum í dag og bætir við að rík­is­stjórn Katrínar Jak­obs­dótt­ir, með Vinstri græna, Fram­sókn­ar­flokk­inn og Sjálf­stæð­is­flokk­inn inn­an­borðs, hafi gert loka­til­raun til að halda hinu svo­kall­aða 4+1 kerfi lif­andi. „Að sýna lands­mönnum að stöð­ug­leik­inn kemur bara með þessu gamla gam­al­gróna og góða. Ég vona bara að tím­inn sanni að það sé kannski ekki æski­leg­ast að hafa svona rosa­lega íhalds­saman flokk á hægri vængnum og pínu íhalds­saman flokk á vinstri vængnum að reyna að vinna sama og halda að það verði ein­hver fram­þróun úr því.“

Hún var gestur Þórðar Snæs Júl­í­us­son­ar, rit­stjóra Kjarn­ans, í sjón­varps­þætt­inum 21 á Hring­braut í vik­unni.

Hægt er að sjá stiklu úr þætt­inum hér að neð­an.



Í þætt­inum ræðir Þór­hildur Sunna þann nýja póli­tíska veru­leika sem felst í því að kerfi með átta eða níu flokkum á stjórn­mála­svið­inu sé að festa sig í sessi, í stað þess að gamli fjór­flokk­ur­inn fékk ávallt saman um 90 pró­sent í kosn­ingum og stundum komst einn til við­bótar að. Hún segir að línur séu að markast innan hins nýja kerfis þar sem lík­ari flokkar starfi saman að ýmsum mál­um, líkt og hefð er fyrir á hinum Norð­ur­lönd­un­um.

Auglýsing
Píratar séu orðnir nokkuð sjó­aðir í þessu enda flokk­ur­inn stofn­aður 2012 og hefur verið á þingi síðan 2013. Hann sé því elsti „nýi flokk­ur­inn“ á þingi í dag. „Við sjáum hvernig lín­urnar eru að skipt­ast í íhalds­sem­ina og frjáls­lynd­ið. Það eru skýr­ustu lín­urnar á þing­inu. Þing­menn sem styðja alþjóða­sam­starf. Styðja lýð­ræði, gagn­sæi og fag­leg vinnu­brögð. Og svo flokkar sem að eru mjög tor­tryggnir gagn­vart útlönd­um, tala um sér­fræð­inga að sunnan og meina það líka gagn­vart alþjóða­stofn­unum sem hafa gríð­ar­lega mikið að bjóða okk­ur. Og finnst að stjórn­mála­menn eigi að skipta gæð­unum á milli sín. Hafi þetta, þótt þeir við­ur­kenni það kannski ekki enn­þá, en hafi það virki­lega djúpt innra með sér „ég á þetta ég má þetta“ konsept gagn­vart rosa­lega mörg­u.“

Aðspurð hvort að hún sjái fyrir sér að næstu rík­is­stjórnir muni teikn­ast upp eftir þessum línum segir Þór­hildur Sunna að flokkar með svip­aða sýn séu að minnsta kosti best til þess fallnir að vinna sam­an. „Ég vona að næsta rík­is­stjórn verði sam­sett af frjáls­lyndum flokkum sem vilja auka alþjóða­sam­starf, vilja vinna gegn loft­lags­á­hrif­um, vilja efla jafn­rétti, lýð­ræði og gagn­sæi í stjórn­mál­um. Að það verði ekki þessi rosa­legi íhaldsás sem að við erum búin að vera að sjá í ýmsum málum und­an­farið sem haldi áfram.“

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent