Icelandair tilkynnti á fundi með hópi flugmanna í þjálfun í dag að óhjákvæmilegt væri að stöðva þjálfun 21 nýliða sem til stóð að hæfu störf sem flugmenn á Boeing 737 MAX vélar félagsins í sumar, sem og slíta ráðningasamningi við 24 flugmenn sem hófu þjálfun á MAX vélarnar síðasta haust og höfðu hafið störf áður en vélarnar voru kyrrsettar.
Þetta kemur fram í tilkynningu frá Icelandair.
Þessi ákvörðun var tekin í ljósi þess að félagið gerir ekki ráð fyrir MAX vélunum í flugáætlun sinni fyrr en um miðjan september nk., eins og fram kom í tilkynningu frá félaginu þann 24. maí sl. „Það er þungbært að þurfa að grípa til þessarar sársaukafullu aðgerðar en við teljum það nauðsynlegt í ljósi þeirra erfiðu aðstæðna sem komnar eru upp vegna kyrrsetningar Boeing 737 MAX vélanna,“ segir Bogi Nils Bogason, forstjóri Icelandair Group, vegna þessa.
„Kyrrsetningin hefur talsverð neikvæð áhrif á rekstur félagsins og við verðum að leita allra leiða til að hagræða og draga úr kostnaði. Við vonumst þó til að geta gefið þessum flugmönnum kost á starfi hjá fyrirtækinu á ný þegar undirbúningur fyrir næsta sumar fer af stað en það kemur betur í ljós þegar málin skýrast varðandi MAX vélarnar,“ segir Bogi Nils enn fremur.
Icelandair mun bjóða aðstoð við atvinnuleit í samstarfi við ráðningastofu en einhverjir flugmannanna sem hafa til þess tilskilda þjálfun eiga kost á að fara í önnur störf hjá félaginu, t.d. sem flugliðar, flugumsjónarmenn eða í önnur störf, segir í tilkynningu.
Óvissa er um hvenær kyrrsetningu á 737 Max vélum Boeing verður aflétt. Kyrrsetninguna má rekja til tveggja flugslysa, 29. október í Indónesíu og 13. mars í Eþíópíu þar sem samtals 346 létust, allir um borð í báðum vélum. Spjótin í rannsóknum beinast að kerfi í 737 Max vélunum, sem á að sporna gegn ofrisi, en Boeing hefur viðurkennt að það hafi verið í þeim galli, sem ekki var talinn ógna öryggi vélanna.
Lokaniðurstöður rannsókn á slysunum liggja ekki fyrir.