„Komið er að vatnaskilum í efnahagslífinu eftir einstaklega þróttmikinn og langan uppgangstíma með miklum tekjuauka heimila, fyrirtækja og ríkissjóðs. Jákvæð afkoma ríkissjóðs árið 2018 endurspeglar styrk hagkerfisins þrátt fyrir að tekið hafi að halla undan fæti á síðari hluta ársins.“
Þetta segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra, í tilkynningu vegna uppgjör ríkissreiknings, en hann hefur nú verið birtur og sendur Alþingi.
Samkvæmt ríkisreikningi var rekstrarafkoman jákvæð um 84 milljarða króna til samanburðar við 39 milljarða afgang árið 2017. Tekjur námu samtals 828 milljörðum og rekstrargjöld 780 milljörðum. Hrein fjármagnsgjöld voru neikvæð um 56 milljarða en hlutdeild í afkomu félaga í eigu ríkisins jákvæð um 91 milljarð.
„Undanfarin ár hafa einkennst af nokkurri aukningu útgjalda í takt við auknar tekjur og ekki síst lækkandi vaxtabyrði ríkissjóðs. Með skuldalækkun og endurfjármögnun lána á hagstæðari kjörum hefur viðnámsþróttur ríkisfjármálanna verið aukinn til muna sem kemur að góðum notum nú þegar hægir á hagvexti,“ segir Bjarni Benediktsson, fjármála- og efnahagsráðherra um niðurstöður ríkisreiknings.
Ríkisreikningur 2018 er nú birtur í annað sinn í samræmi við ákvæði laga um opinber fjármál. Unnið er að innleiðingu nýrra reikningsskila eftir þriggja ára áætlun sem gert er ráð fyrir að verði að fullu komin til framkvæmda við framlagningu ríkisreiknings 2019, segir í tilkynningu.
Heildareignir í árslok 2018 eru 2.224 milljörðum króna., skuldir 1.611 milljarði og eigið fé 613 milljörðum króna sem er hækkun um 117 milljarða.