Stjórn Eflingar – stéttarfélags lýsir yfir stuðningi við þá ákvörðun fulltrúaráðs Lífeyrissjóðs verslunarmanna að afturkalla umboð stjórnarmanna í kjölfar þess að stjórn sjóðsins hækkaði vexti með „geðþóttaákvörðun þvert á almennar vaxtalækkanir og yfirlýst markmið nýundirritaðra kjarasamninga“.
Þetta kemur fram í yfirlýsingu frá stjórn Eflingar.
Jafnframt er stuðningur við Ragnar Þór Ingólfsson, formann VR, ítrekaður. „Stjórn Eflingar lýsir yfir samstöðu með formanni og forystu VR, stærsta stéttarfélagi landsins, gegn þeirri hrinu ásakana sem nú dynur á félaginu með fulltingi Fjármálaeftirlitsins, samtaka atvinnurekenda og dagblaða. Þessi viðbrögð sýna óttann sem kviknar hjá varðmönnum kerfisins þegar launafólk sýnir kraftinn sem býr í öflugum samtökum þeirra,“ segir í yfirlýsingunni.
Stjórn Eflingar segir í yfirlýsingunni að eðlilegt sé að fjármálastofnanir endurspegli með eðlilegum hætti stýrivaxtalækkanir í síðustu tveimur vaxtaákvörðunum Seðlabankans og lækkun markaðsvaxta á skuldabréfamarkaði.
„Fjármálastofnunum ber að sjálfsögðu að nýta það svigrúm þannig að það skili sér til neytenda, en fóðri ekki aðeins gróða fjármálastofnana. Úttekt IFS Greiningar unnin fyrir VR hefur varpað ljósi á óeðlileg, óútskýrð og sívaxandi álög í álögum fjármálastofnana í útlánum þeirra síðustu ár. Stjórn Eflingar minnir á að lífeyrissjóðirnir eru afurð samkomulags milli aðila vinnumarkaðarins. Samkvæmt lögum og samþykktum þeirra á launafólk sem greiðir í sjóðina rétt á aðkomu að stjórn þeirra m.a. í gegnum fulltrúaráð. Sú aðkoma er með öllu merkingarlaus ef fulltrúaráðum er gert óheimilt að bregðast við í tilfellum þar sem stjórnir sjóðanna ganga þvert á markmið verkalýðshreyfingarinnar og almennt viðskiptasiðferði,“ segir í yfirlýsingunni.