Halldór Auðar Svansson, fyrrverandi borgarfulltrúi Pírata, skrifar í stöðuuppfærslu á Facebook-síðu sinni í dag að hinn svokallaði flati strúktúr flokksins verði að byggjast á einhvers konar strúktúr. Tilgangurinn með slíkum strúktúr eigi meðal annars að vera sá að gefa fólki, sem vinnur fyrir flokkinn, lágmarksvinnufrið í formi fyrirsjáanlegra ferla. Annars vinni þeir frekustu hverju sinni og frekju sé mætt með enn meiri frekju þar til allt sýður upp úr.
Tilefni skrifanna er viðtal við Helga Hrafn Gunnarsson, þingmann Pírata, á mbl.is í dag þar sem hann talar um það fyrirkomulag innan flokksins að vera án formanns. Þá segir hann að hinn flati strúktúr flokksins gangi á meðan allir sem taka þátt í litlum hópi séu á sömu blaðsíðunni um það hvernig hlutirnir eiga að vera.
Flati strúktúrinn eitt stærsta vandamál flokksins
„Hinn svokallaði flati strúktúr og markaleysið sem hann veldur er vissulega eitt stærsta vandamálið innan flokksins. Til að laga það þarf hins vegar að huga að fleiru en mögulegu formannsembætti,“ skrifar Halldór.
Hann segir að eitt sem hann hafi rekið sig strax á við að koma inn í framkvæmdaráð flokksins í fyrra hafi verið algjört skipulagsleysi á fundum þess og tilheyrandi óvissa með það hvað væri að fara að gerast á þeim, hverjir væru að fara að mæta ótilkynntir sem gestir, hvað þeim gengi til og hver mörkin væru milli gesta og þeirra sem kjörnir voru til að sitja í framkvæmdaráði.
„Mér fannst alveg nógu flókið að henda reiður á öllum sem sátu í framkvæmdaráði og voru til þess lýðræðislega kjörnir, þó ekki bættust þar ofan á allir aðrir flokksmenn sem höfðu áhuga á afskiptum af störfum þess. Þetta fannst mér ekki vera flatur strúktúr heldur einfaldlega algjört strúktúrleysi sem bauð upp á „gengjastríð“ milli fylkinga eftir fullkomlega ófyrirsjáanlegum reglum. Ég taldi þetta ekki gott fyrirkomulag fyrir neinn og síst af öllu fyrir geðheilsu þeirra sjálfboðaliða sem var ætlað að sitja í framkvæmdaráði og höfðu til þess lýðræðislegt umboð,“ skrifar hann.
Látin skammast sín fyrir „leyndarhyggju“
Halldór segir jafnframt að gagnrýni á þetta óreiðufyrirkomulag hafi hins vegar sumir svarað innan flokksins á þá leið að þetta væri hinn eini sanni flati strúktúr og að það væri ekki í anda Pírata að setja einhver mörk gagnvart þessu.
„Við sem vildum agaðra fyrirkomulag vorum látin skammast okkar fyrir „leyndarhyggju“ af því að við vildum að framkvæmdaráð, sérstaklega þegar það var að reyna að gera sig starfhæft með slatta af nýju fólki og velja sér formann, fengi lágmarksvinnufrið á fundum sínum. Algjörlega opnir fundir alltaf voru víst hið eina sanna Píratafyrirkomulag, eða það var allavega mín upplifun af stemningunni - og í stað þess að halda áfram að slást við það sjónarmið ákvað ég að víkja. Kannski kom ég gagnrýni minni ekki rétt á framfæri og kannski var tíminn til að ræða þessi mál ekki réttur en niðurstaðan var allavega að mér þótti réttast að draga mig frá þessu öllu saman. Það er raunar ein besta ákvörðun sem ég hef tekið, enda hafði ég mjög gott af því að taka mér algjört frí frá flokkspólitísku starfi hvort eð er.
Það er fullt af góðu fólki í Pírötum og mér þykir enn afar vænt um það, þannig að þessar vangaveltur mínar um það sem betur mætti fara eru alls ekki illa meintar – en svona fyrst að flokksfólk er að opna sig um vandamál og særindi þá er þetta mitt helsta innlegg í þá umræðu. Þetta er líka meint sem kerfisleg gagnrýni frekar en gagnvart persónum,“ skrifar Halldór.
Ég hef ekki mikið verið að tjá mig um innri málefni Pírata enda hef ég verið óvirkur þar í allnokkra mánuði - en hér...
Posted by Halldór Auðar Svansson on Monday, July 22, 2019