Angela Merkel, kanslari Þýskalands, verður sérstakur gestur á sumarfundi forsætisráðherra Norðurlandanna í Reykjavík í byrjun næstu viku. Þetta kemur fram í tilkynningu frá stjórnvöldum sem send var til fjölmiðla í dag.
Í henni segir að þriðjudaginn 20. ágúst munu forsætisráðherrar Norðurlandanna koma saman í Reykjavík til árlegs sumarfundar. Í tengslum við leiðtogafundinn mun Katrín Jakobsdóttir forsætisráðherra eiga nokkra tvíhliða fundi, meðal annars með Þýskalandskanslara.
Samkvæmt stjórnvöldum verður dagskrá fundarins auglýst betur síðar.
Auglýsing