„Galið“ að láta skattalækkun ganga upp allan stigann

Formaður Samfylkingarinnar sagði ríkisstjórnina ósamstíga í sínum aðgerðum.

Logi Einarsson
Auglýsing

„Þó það sé vissu­lega ánægju­legt að verka­lýðs­hreyf­ing­inn hafi knúið fram skatta­lækkun á lágar og með­al­tekjur er  galið að láta hana ganga upp allan stig­ann.“ 

Þetta sagði Logi Ein­ars­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, í umræðu um stefnu­ræðu for­sæt­is­ráð­herra, í kvöld, þegar þing­vet­ur­inn hófst form­lega. 

Logi sagði að það sýndi sig hvaða for­gangs­röðun ætti upp á pall­borðið hjá rík­is­stjórn­inni, að frekar væri hugsað um þá ríku en vel­ferð­ar­kerf­ið. „Í stað þess að láta ofsa­ríkt fólk leggja meira af mörkum er gerð aðhalds­krafa á vel­ferð­ar­þjón­ust­una sem er látin bera uppi nið­ur­sveiflu í kóln­andi hag­kerfi. Tekju­lægra fólk sem ekki naut upp­gangs síð­ustu ára gæti lent í meiri erf­ið­leikum -  en þau  5% pró­sent lands­manna sem eiga jafn­mikið og hin 95% pró­sentin sigla lygn­ari sjó,“ sagði Log­i. 

Auglýsing

Þá sagði hann að rík­is­stjórn­ar­flokk­arn­ir, Fram­sókn, Vinstri græn og Sjálf­stæð­is­flokk­ur, væru fremur að þjóna sér­hags­munum en almanna­hags­mun­um, í stefnu rík­is­stjórn­ar­inn­ar. „For­senda efna­hags­legra fram­fara og góðs sam­fé­lags er að sér­hverjum ein­stak­lingi verði tryggð skil­yrði til að rækta hæfi­leika sína og nýta í þágu eigin vel­ferð­ar, sam­fé­lags síns og kom­andi kyn­slóða. Til þess þurfa þó leik­regl­urnar að þjóna almanna­hags­mun­um, ekki sér­hags­munum fárra.“

Logi gerði einnig þátt­töku í alþjóða­sam­starfi að umtals­efni, og sagði það nauð­syn­legt Ísland væri virk­ari þátt­tak­andi í því, til að tryggja öryggi og lífs­gæði til fram­tíðar lit­ið. „Við þurfum nýja stjórn­ar­skrá og þát­töku í fjöl­þjóða­sam­starfi sem getur skilað okkur auknu öryggi, rík­ari lífs­gæð­um, fjöl­breyttni og víð­ari sjón­deild­ar­hring; svo ekki sé talað um stöðugri gjald­mið­il.“

Hann sagði fram­tíð­ina byggja á virkjun hug­vits­ins. Þar þyrftu stjórn­völd að ganga lengra, og virða vilja fólks­ins. „Hug­vit er okk­ar verð­mæt­asta auð­lind og sú eina sem er óþrjót­andi. Ný­­leg umræða um aðra auð­lind, ork­una, öskr­­ar á að vilji þjóð­ar­­inn­ar um nýja stjórn­­­ar­­skrá verði virt­­ur. Og þótt hæst­virt­ur for­­sæt­is­ráð­herra vilji það ef til vill, er rétt að minna hann á að hún mynd­aði rík­­is­­stjórn með tveim­ur flokk­um sem börð­ust hat­ramm­­lega gegn nýrri stjórn­­­ar­­skrá fyr­ir fá­ein­um árum og ósenn­i­­legt að þeim hafi snú­ist hug­­ur.“ 









Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent