„Ég fékk fregnir af þessu máli í fjölmiðlum í morgun líkt og aðrir. Þó ég geti ekki tjáð mig um einstök mál get ég þó sagt að mér var brugðið líkt og öðrum,“ segir Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, dómsmálaráðherra á Facebook síðu sinni, um það að ólétt kona - gengin tæplega 36 vikur - hafi verið send úr landi eftir ákvörðun Útlendingastofnunar þar um. „Við viljum öll að farið sé varlega þegar um er að ræða þungaðar mæður, börn þeirra, fædd og ófædd. Almennt er verklagið á þann veg í dag að fengin eru tilmæli frá heilbrigðisyfirvöldum um hvort einhver hætta sé vegna brottfarar þeirra sem um ræðir úr landi. Ef svo er er brottvísun frestað. Það hefur oft orðið raunin, til að mynda vegna þungunar kvenna í þessari erfiðu stöðu,“ segir Áslaug Arna á síðu sinni.
Hún segist hafa óskað eftir upplýsingum um málið, og fengið þau svör að almennum reglum hafi verið fylgt í málinu. „Landlæknir hefur engu að síður boðað að skoða skuli verklagið og Útlendingastofnun mun fara yfir gildandi reglur með þeim. Ég fagna því. Það þarf að meta hvort í ljósi þessa máls sé þörf á að breyta reglum eða verklagi. Brýnt er að leiðbeiningar frá heilbrigðisyfirvöldum séu skýrar. Um þessar mundir er ég að leggja lokahönd á að skipa þverpólitíska þingmannanefnd um málefni útlendinga. Þar verður hægt að fjalla um framkvæmd laganna, mögulegar lagabreytingar með mannúðarsjónarmið til grundvallar, fá gesti og koma með tillögur til úrbóta. Sú vinna er einstaklega mikilvæg,“ segir Áslaug Arna.