Tekjur Sjálfstæðisflokksins voru alls 367,6 milljónir króna í fyrra en alls komu 180,7 milljónir úr ríkissjóði. Það þýðir að tæpur helmingur af tekjum flokksins komu úr sameiginlegum sjóðum. Tekjur flokksins aukast um 48,2 prósent frá árinu 2017 en þá voru þær 248,1 milljón króna.
Rekstur flokksins kostaði alls 373,7 milljónir króna í fyrra. Flokkurinn skuldaði 430,9 milljónir króna í lok síðasta árs og hækkuðu skuldir hans milli ára úr 421,8 milljónum króna.
Þetta er á meðal þess sem fram kemur í útdrætti úr ársreikningi Sjálfstæðisflokksins sem Ríkisendurskoðun birti í dag.
Sjálfstæðisflokkurinn fékk 25,2 prósent atkvæða í kosningunum 2017 og 16 þingmenn kjörna. Árið 2018 var fyrsta árið í rekstri þeirra stjórnmálaflokkanna sem eiga fulltrúa á þingi frá því að framlög til þeirra úr ríkissjóði voru hækkuð um 127 prósent, að tillögu sex flokka sem sæti eiga á Alþingi. Framlög úr ríkissjóði til flokkanna átta á þingi áttu að vera 286 milljónir króna í fyrra en urðu 648 milljónir króna eftir að sú ákvörðun var tekin. Einu flokkarnir sem skrifuðu sig ekki á tillöguna voru Píratar og Flokkur fólksins.
Þegar kosið verður næst, árið 2021, munu flokkarnir átta sem náðu inn á þing í haustkosningunum 2017 verða búnir að fá alls úthlutað rúmlega 2,8 milljörðum króna úr ríkissjóði vegna áranna 2018 til 2021 til að standa straum af starfsemi sinni.
Ný lög um fjármál stjórnmálaflokka voru samþykkt á Alþingi í desember í fyrra. Á meðal breytinga sem þau lög fela í sér eru að stjórnmálaflokkar mega nú taka á móti hærri framlögum frá fyrirtækjum og einstaklingum. Hámarksframlagið var 400 þúsund krónur en var hækkað í 550 þúsund krónur.
Auk þess var sú fjárhæð sem einstaklingur þarf að gefa til að vera nafngreindur í ársreikningum viðkomandi flokka eða frambjóðenda hækkuð úr 200 þúsund krónum í 300 þúsund krónur. Hugtakið „tengdir aðilar“ var líka samræmt, en Ríkisendurskoðun gerði í fyrra athugasemdir við umframframlög aðila sem voru gefin í gegnum nokkur mismunandi félög í eigu sömu aðila.
Þá var ákveðið að láta stjórnmálaflokkanna skila ársreikningum sínum til ríkisendurskoðanda fyrir 1. nóvember ár hvert í stað 1. október líkt og nú er. Sú grundvallarbreyting fylgdi með að Ríkisendurskoðun mun hætta að birta takmarkaðar upplýsingar úr reikningum flokkanna, svokallaðan útdrátt, og birtir þess í stað ársreikninganna í heild sinni áritaða af endurskoðendum.
Þessi breyting á hins vegar ekki að taka gildi fyrr en á næsta ári, þrátt fyrir að nýju lögin séu þegar komin í gagnið.