Í tilkynningu frá SFS segir að ásakanir gagnvart Samherja, sem komu fram í þætti Kveiks á RÚV í gær, séu alvarlegar. „Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi (SFS) vilja taka fram vegna umræðu um starfsemi Samherja hf. í Afríku, að það hefur ætíð verið afstaða samtakanna að allir félagsmenn skuli fara að lögum og eftir reglum. Gildir þá einu hvar viðkomandi starfsemi fer fram, á Íslandi eða í útlöndum,“ segir Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, í tilkynningu.
Þá segir enn fremur að mál af þessu tagi, sem varði starfsemi íslenskra fyrirtækja erlendis, geti haft mikil áhrif á íslenskan sjávarútveg í heild sinni. ˜Ljóst er að mál af þessu tagi getur
haft áhrif á orðspor íslensks sjávarútvegs og stöðu á alþjóðlegum markaði. Því er brýnt að málið verði rannsakað og hið rétta komi fram. Það er allra hagur, ekki síst þeirra sem bornir eru þungum sökum,“ segir í tilkynningunni.