„Síðastliðin tvö ár hef ég upplifað að samstarfið hefti mig í að vinna af fullum krafti fyrir þeim hugsjónum sem ég var kosinn fyrir. Nú er svo komið að ég tel fullreynt að ég geti sinnt þingstörfum eftir samvisku minni og sannfæringu við núverandi aðstæður.“
Þetta ritar Andrés Ingi Jónsson, þingmaður utan flokka, á Facebook-síðu sinni en fram kom í fréttum í dag að hann hefði sagt sig úr þingflokki Vinstri grænna.
Hann segir enn fremur í færslu sinni á Facebook að um þessar mundir séu tvö ár síðan flokksráð Vinstri grænna samþykkti að mynda ríkisstjórn með Sjálfstæðisflokki og Framsókn. „Sú ákvörðun var nógu umdeild til að fjöldi félaga sagði skilið við hreyfinguna. Þrátt fyrir að ég hafi ekki stutt ríkisstjórnina á flokksráðsfundi ákvað ég að starfa áfram innan þingflokks VG – ekki síst til að styðja hina ágætu ráðherra Vinstri grænna til góðra verka.“
„Eins og við var að búast hefur verið nokkur áskorun að takast á við samskipti og samstarf í þingflokknum eftir þann ágreining sem stjórnarsamstarfið skapaði. Þó tel ég að við höfum öll lagt okkur fram um að vinna sem best saman.
Það hafa á þessu tíma safnast upp dæmi sem mér þykja til marks um það sem ég óttaðist í upphafi: að Vinstri græn ættu sífellt erfiðar með að veita samstarfsflokkunum mótspyrnu og stjórnarsamstarfið færðist enn fjær því sem flokkurinn ætti að standa fyrir. Vissulega höfum við náð árangri en oft hafa málamiðlanir fallið fjarri okkar hugsjónum, eins og birtist til að mynda í stjórnarfrumvarpi um útlendinga á liðnu vori. Aðkallandi aðgerðir til að sporna við hamfarahlýnun hafa ekki gengið jafn langt og ég tel nauðsynlegt og sjálfsagt í ríkisstjórn undir forystu grænnar hreyfingar,“ skrifar hann.
Í lok færslunnar þakkar hann félögum sínum í þingflokki Vinstri grænna samfylgdina.
Posted by Andrés Ingi á þingi on Wednesday, November 27, 2019