Milla Ósk Magnúsdóttir hefur verið ráðin aðstoðarmaður Lilju Alfreðsdóttur mennta- og menningarmálaráðherra. Samhliða mun Hafþór Eide Hafþórsson láta af störfum, en hann hefur verið mennta- og menningarmálaráðherra til aðstoðar frá desember 2017.
Í fréttatilkynningu segir að Milla hafi síðastliðinn áratug starfað hjá Ríkisútvarpinu, síðustu ár sem fréttamaður en áður sem aðstoðarframleiðandi frétta og dagskrárgerðarkona í útvarpi og sjónvarpi. „Þá var hún varaformaður Félags fréttamanna á Ríkisútvarpinu. Milla er með ML-próf í lögfræði frá Háskóla Reykjavíkur þar sem hún sérhæfði sig í fjölmiðlarétti, auk þess að leggja áherslu á persónuupplýsinga- og vinnurétt. Hún mun hefja störf í ráðuneytinu þann 10. desember.“
Í aðdraganda forsetakosninganna í mars 2016 tilkynnti Hrannar að hann hygðist bjóða sig fram til embættis forseta Íslands. Síðar hætti hann við framboðið í ljósi þess að Ólafur Ragnar Grímsson, sitjandi forseti, hefði ákveðið að bjóða sig fram á ný. Skömmu síðar, í maí 2016, var hann ráðinn aðstoðarmaður þáverandi utanríkisráðherra, Lilju Alfreðsdóttur.