Gunnar Jakobsson tilnefndur í embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika

Bjarni Benediktsson hefur tilnefnt í embætti varaseðlabankastjóra fjármálastöðugleika, sem forsætisráðherra skipar í. Sá sem var tilnefndur hefur starfað lengi hjá Goldman Sachs.

Gunnar Jakobsson
Auglýsing

Bjarni Bene­dikts­son, fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra, hefur til­nefnt Gunnar Jak­obs­son í emb­ætti vara­seðla­banka­stjóra fjár­mála­stöð­ug­leika. Katrín Jak­obs­dóttir for­sæt­is­ráð­herra mun síðan skipa í emb­ætt­ið.

Þetta kemur fram í til­kynn­ingu á vef stjórn­ar­ráðs­ins. 

Þar segir að for­sæt­is­ráð­herra hafi þann 3. októ­ber 2019 aug­lýst eftir vara­seðla­banka­stjóra fjár­mála­stöð­ug­leika. „Fjár­mála-og efna­hags­ráð­herra skip­aði þriggja manna hæfn­is­nefnd til að fjalla um hæfni umsækj­end­anna og lauk hún störfum sl. mánu­dag. Nið­ur­staða hennar var að meta fimm umsækj­endur mjög vel hæfa til að gegna emb­ætt­inu. Fjár­mála- og efna­hags­ráð­herra hefur nú farið yfir gögn máls­ins, nið­ur­stöður hæfn­is­nefnd­ar­innar og tekið við­töl við þá fimm ein­stak­linga sem nefndin mat mjög vel hæfa. Að loknu heild­ar­mati hefur ráð­herra ákveðið að til­nefna Gunnar Jak­obs­son í emb­ætt­ið.“

Auglýsing

Gunnar Jak­obs­son er lög­fræð­ingur að mennt, með MBA próf frá Yale og hefur und­an­farin ár gegnt stjórn­un­ar­stöðum hjá Gold­man Sachs, fyrst í New York og nú síð­ast sem fram­kvæmda­stjóri lausa­fjársviðs og per­sónu­verndar Gold­man Sachs International í London.

Kjarn­inn greindi frá því 10. des­em­ber síð­ast­lið­inn að fimm umsækj­endur hefðu verið metin mjög vel hæf, í mati hæf­is­­nefndar á umsækj­endum um stöðu vara­­seðla­­banka­­stjóra á sviði fjár­­­mála­­stöð­ug­­leika. 

Það  voru Guð­rún Johnsen, Jón Þór Sturlu­­son, Tómas Brynj­­ólfs­­son, Gunnar Jak­obs­­son og Yngvi Örn Krist­ins­­son. Ásdís Krist­jáns­dóttir var metin vel hæf líkt og Óttar Guð­jóns­­son. 

Arnar Bjarna­­son og Kristrún Heim­is­dóttir voru metin hæf, í mati hæf­is­­nefnd­­ar, sam­­kvæmt heim­ildum Kjarn­ans.

Athuga­­semda­frestur umsækj­enda var gef­inn til 13. des­em­ber, en nefnd­ina skipa, auk Vil­hjálms Egils­­son­­ar, rekt­ors á Bif­­röst og for­­manns nefnd­­ar­inn­­ar, Ásta Dís Óla­dótt­ir, lektor við Háskóla Íslands, til­­­­­nefnd af sam­­­starfs­­­nefnd háskóla­­­stigs­ins, og Jacqueline Clare Mal­­­let, lektor við Háskól­ann í Reykja­vík, til­­­­­nefnd af banka­ráði Seðla­­­banka Íslands.

Umsækj­endur um starfið voru upp­­haf­­lega 10, en einn umsækj­enda, Haukur C. Bene­dikts­­son, var í milli­­­tíð­inni ráð­inn fram­­kvæmda­­stjóri fjár­­­mála­­stöð­ug­­leika hjá Seðla­­banka Íslands. 

Þau tíu sem sóttu um starf­ið, voru:

Arnar Bjarna­­­son, lektor og fram­­­kvæmda­­­stjóri

Ásdís Krist­jáns­dótt­ir, aðal­­­hag­fræð­ingur og for­­­stöð­u­­­maður efna­hags­sviðs Sam­­­taka atvinn­u­lífs­ins

Guð­rún Johnsen, hag­fræð­ingur

Gunnar Jak­obs­­­son, lög­­­fræð­ingur

Haukur C. Bene­dikts­­­son, hag­fræð­ingur

Jón Þór Sturlu­­­son, aðstoð­­­ar­­­for­­­stjóri Fjár­­­­­mála­eft­ir­lits­ins

Kristrún Heim­is­dótt­ir, lög­­­fræð­ingur

Óttar Guð­jóns­­­son, fram­­­kvæmda­­­stjóri Lána­­­sjóðs sveit­­­ar­­­fé­laga

Tómas Brynj­­­ólfs­­­son, skrif­­­stofu­­­stjóri í fjár­­­­­mála- og efna­hags­ráðu­­­neyt­inu

Yngvi Örn Krist­ins­­­son, hag­fræð­ingur Sam­­­taka fjár­­­­­mála­­­fyr­ir­tækja

Aðrir vara­­­seðla­­­banka­­­stjórar eru Rann­veig Sig­­­urð­­­ar­dóttir og Unnur Gunn­­­ar­s­dótt­ir, en seðla­­­banka­­­stjóri er Ásgeir Jóns­­­son. Verði Gunnar stað­festur í starfið mun yfir­stjórn Seðla­bank­ans, sem sam­ein­ast Fjár­mála­eft­ir­lit­inu um ára­mót, verða full­mönn­uð. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent