Þau skilyrði sem samið var um vegna sölu á Icelandair Hotels hafa nú að mestu verið uppfyllt. Frá þessu er greint í tilkynningu frá Icelandair Group til kauphallar.
Gert er ráð fyrir að gengið verði frá viðskiptunum í lok febrúar 2020 en ekki í árslok 2019 eins og upphaflega hafði verið stefnt að, en heildargreiðslur til Icelandair Group vegna kaupanna eru um 10,1 milljarður króna (84 milljónir Bandaríkjadala).
Þann 13. júlí sl. skrifaði stjórn Icelandair Group undir samning við dótturfélag Berjaya Land Berhad um kaup á 75 prósent hlut í Icelandair Hotels og tengdum fasteignum.
Eitt af skilyrðum kaupanna var endurfjármögnun hótelfélagsins. Stjórn Icelandair Hotels skrifaði í dag undir samning við Arion Banka um átta milljarða króna lán (65 milljónir Bandaríkjadala) þess efnis.
Berjaya hefur nú þegar greitt Icelandair Group um 1,8 milljarð króna (15 milljónir Bandaríkjadala) eða um það bil 30 prósent af kaupverði félagsins.
„Dagsetning lokagreiðslu verður 28. febrúar 2020, en þessi tveggja mánaða seinkun kemur til vegna gjaldeyrishafta í Malasíu. Kaupandi hefur þegar lagt fram staðfestingu á fjármögnun eftirstöðva kaupverðsins og samþykkt að greiða 6% ársvexti af þeim. Komi til þess að eftirstöðvarnar verði ekki greiddar er samkomulag um vanefndagreiðslu að fjárhæð um 1,2 milljarðar króna (10 milljónir Bandaríkjadala) af hálfu kaupanda af því sem þegar hefur verið greitt og getur Icelandair Group þá rift kaupunum. Heildargreiðslur til Icelandair Group vegna kaupanna eru um 10,1 milljarður króna (84 milljónir Bandaríkjadala). Sem fyrr segir hefur 1,8 milljarður króna (15 milljónir Bandaríkjadala) þegar verið greiddur, um 3,4 milljarðar króna (29 milljónir bandaríkjadala) verða nú greiddir í kjölfar endurfjármögnunar Icelandair Hotels og lokagreiðsla að fjárhæð um 4,9 milljarðar (40 milljónir Bandaríkjadala) verður greidd þann 28. febrúar 2020,“ segir í tilkynningu frá Icelandair.
Berjaya Land Berhad er skráð félag í Malasíu og starfar meðal annars í hótelrekstri, smásölu og fasteignaþróun. Berjaya Land Berhad og tengd félög eru með um 4.700 starfsmenn og nema árlegar tekjur samstæðunnar 1.76 milljarði Bandaríkjadala. Stofnandi og stjórnarformaður Berjaya Group er Vincent Tan.