Þyngri refsingar við ölvunarakstri á nýju ári

Umferðarlagabrotum hefur fjölgað mikið á síðustu árum en alls voru skráð 78 þúsund umferðarlagabrot árið 2018. Um áramótin tók gildi ný reglugerð þar sem ýmsar sektir við umferðarlagabrotum eru hækkaðar og refsingar við ölvunarakstri þyngdar til muna.

1-mai_14083389724_o.jpg
Auglýsing

Refs­ingar vegna umferð­ar­laga­brota munu þyngj­ast nú á nýju ári eftir að ný reglu­gerð um ­um­ferð­ar­lög tók gildi þann 1. jan­úar síð­ast­lið­inn. Þar á meðal hafa sektir verið hækk­aðar vegna ölv­un­arakst­urs og svipt­ingar öku­rétt­inda lengd­ar.

Með nýju reglu­gerð­inni varð til­ nýtt efsta refsi­þrep við ölv­un­ar­akstri sem felur í sér að ef vín­­anda­­magn í blóði öku­manns mælist yfir 2,51 pró­mill varðar það svipt­ingu öku­rétt­ar í þrjú ár og sex mán­uði auk 270.000 króna sekt­­ar. 

Með til­­komu nýs efsta þreps varð jafn­framt til nýtt milli­þrep en það er ef vín­­andi í blóði mælist 2,01 til 2,50 pró­mill á öku­maður yfir höfði sér svipt­ingu öku­rétt­ar í þrjú ár og 240.000 króna sekt, en áður var slíkt magn í efsta þrepi og varð­aði svipt­ingu öku­rétt­inda í tvö ár auk 210.000 króna sekt­ar.

Auglýsing

Jafn­framt var svipt­ing öku­rétt­inda lengd um sex mán­uði ef öku­menn mæl­ast með vín­anda­magn í blóði á bil­inu 1,20 til 1,50 ­pró­mill og er því nú eitt ár og sex mán­uð­ir, auk 180 þús­und króna sekt­ar.

50 þús­und krónur fyrir að keyra yfir á rauðu ljósi

Aðrar hækk­anir í kjöl­far nýju reglu­gerð­ar­innar eru hærri sekt við akstri ­gegn rauðu ljósi en sú sekt hækk­aði úr 30.000 í 50.000 krónur um ára­mót­in. Auk þess verður sekt við því að veg­far­andi sinni ekki skyldu við umferð­ar­ó­happ 30 þús­und krón­ur. 

Umferð­ar­laga­brot­u­m hefur fjölgað mikið á síð­ustu árum. Í afbrota­töl­fræði­skýrslu lög­regl­unnar kemur fram að ­um­ferð­ar­laga­brot voru rúm­lega 78 þús­und á árinu 2018. Mikil fjölgun var á um­ferð­ar­laga­brot­u­m milli ára en flest ­um­ferð­ar­laga­brot á íbúa eru á Norð­ur­landi vestra og Vest­ur­land­i. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent