Sjö sækja um embætti ríkislögreglustjóra

Páll Winkel fangelsismálastjóri og Sigríður Björk Guðjónsdóttir lögreglustjóri á höfuðborgarsvæðinu eru meðal þeirra sem sækja um embætti ríkislögreglustjóra.

Sigríður Björk Guðjónsdóttir
Sigríður Björk Guðjónsdóttir
Auglýsing

Sjö umsóknir bár­ust um emb­ætti rík­is­lög­reglu­stjóra sem aug­lýst var laus til umsókn­ar. Þetta kemur fram á vef Stjórn­ar­ráðs­ins í dag.

Eft­ir­taldir sóttu um emb­ætt­ið:

  • Arnar Ágústs­son örygg­is­vörður
  • Grímur Gríms­son tengsla­full­trúi Íslands hjá Europol
  • Halla Berg­þóra Björns­dóttir lög­reglu­stjóri á Norð­ur­landi Eystra
  • Kristín Jóhann­es­dóttir lög­fræð­ingur
  • Logi Kjart­ans­son lög­fræð­ingur
  • Páll Win­kel fang­els­is­mála­stjóri
  • Sig­ríður Björk Guð­jóns­dóttir lög­reglu­stjóri á höf­uð­borg­ar­svæð­inu

Har­aldur Johann­es­en, sem hafði verið rík­is­lög­reglu­stjóri í 22 ár, samdi síðla árs í fyrra um starfs­­lok sín við dóms­­mála­ráð­herra og er kostn­aður vegna þeirra starfs­loka áætl­­að­­ur­  47,2 millj­­­ónir króna án launa­tengdra gjalda. Þegar þeim er bætt við er kostn­að­­­ur­inn 56,7 millj­­­ónir króna. 

Í sept­­­em­ber síð­­­ast­liðnum lýstu átta af níu lög­­­­­reglu­­­stjórum lands­ins og for­­­manna­fundur Lands­­­sam­­­bands lög­­­­­reglu­­­manna yfir van­­­trausti á Har­ald. Þeir báru við­­­tal sem hann fór við í Morg­un­­­blað­inu fyrr í þeim mán­uði fyrir sig sem lyk­ilá­­­stæðu þeirrar ákvörð­un­­­ar. 

Auglýsing
Í við­tal­inu sagði Har­aldur meðal ann­­­ars að verið væri að reyna að hrekja hann úr emb­ætti með því að dreifa vís­vit­andi rang­­­færslum og róg­­­burði um hann. Þeir sem væru að gera það væru lög­­­­­reglu­­­menn sem teldu sig eiga harma að hefna gegn hon­um, meðal ann­­­ars vegna þess að hann hafi gripið inn í vegna starfs­hátta eða fram­komu þeirra eða vegna þess að þeir hafi ekki fengið stöður sem þeir sótt­­­ust eft­­­ir. Ef til starfs­loka hans kæmi myndi það kalla á enn ítar­­­legri umfjöllun af hans hálfu um valda­bar­átt­una bak við tjöld­in.

Starf rík­is­lög­reglu­stjóra var í kjöl­farið aug­lýst laust til umsóknar og rann umsókn­ar­frestur út 10. jan­úar síð­ast­lið­inn. 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent