Gera ráð fyrir að 2.100 greinist með veiruna í þessari bylgju faraldursins

Ný forspá vísindamanna um þróun kórónuveirufaraldursins hér á landi gerir ráð fyrir því allt að 2.600 manns greinist með COVID-19 í þessari bylgju faraldursins. Aldursdreifing smitaðra hefur verið hagstæð hér á landi til þessa.

Kórónuveira Mynd: Landspítali/Þorkell Þorkelsson
Auglýsing

Nú er gert ráð fyrir því að rúm­lega 2.100 manns muni grein­ast með COVID-19 hér á landi í þess­ari bylgju far­ald­urs­ins, en talan gæti náð 2.600 sam­kvæmt svart­sýnni spá. Þetta kemur fram í upp­færðri for­spá vís­inda­manna Háskóla Íslands, Land­spít­ala og land­lækn­is­emb­ætt­is­ins, sem mið­ast við gögn til og með 5. apr­íl.

Gert er ráð fyrir því að fjöldi þeirra sem eru með virkan sjúk­dóm nái hámarki í þess­ari viku og að þeir verði um 1.400 tals­ins. Sam­kvæmt svart­sýnni spá gæti þó farið svo að toppnum verði ekki náð fyrr en í næstu viku og að 1.700 ein­stak­lingar hafi þá virkan sjúk­dóm á sama tíma.

Sam­kvæmt nýj­ustu gögnum er gert ráð fyrir því að á meðan þessi bylgja far­ald­urs­ins fer yfir þurfi 140 manns að leggj­ast inn á sjúkra­hús, en fjöld­inn gæti náð hátt í 170 manns. Mest álag á heil­brg­iðis­þjón­ustu verður fyrir miðjan apr­íl, en þá er gert ráð fyrir að um það bil 70 ein­stak­lingar geti verið inniliggj­andi á sama tíma, en svart­sýnni spá er 90 ein­stak­ling­ar.

Auglýsing

Upp­færð for­spá gerir ráð fyrir því að tíma far­ald­urs­ins muni 28 ein­stak­lingar veikj­ast alvar­lega og þurfa gjör­gæslu­inn­lög, en svart­sýnni spá gerir ráð fyrir því að þessir sjúk­lingar verði allt að 41 tals­ins.

Mestu álagi á gjör­gæslu­deildir er spáð í annarri viku apr­íl, en þá er búist við því að 11 sjúk­lingar liggi á gjör­gæslu á sama tíma, en sam­kvæmt svart­sýnni spá gætu það verið 19 manns.

Ef fleiri eldri fara að veikj­ast má búast við þyngri stöðu

Vert er að hafa í huga, segja vís­inda­menn­irn­ir, að hér á landi hefur ald­urs­dreif­ing smit­aðra ein­stak­linga verið hag­stæð til þessa. 

Smá­vægi­leg hliðrun ald­urs­dreif­ingar í átt að fleiri greindum smitum meðal ein­stak­linga yfir sex­tugt myndi auka álag á heil­brigð­is­þjón­ustu tals­vert, sam­kvæmt hermun sem vís­inda­menn­irnir fram­kvæmdu.

Ef fleiri eldri mann­eskjur myndu smit­ast en raunin hefur verið til þessa gæti staðan í heil­brigð­is­kerf­inu þannig orðið tölu­vert þyngri og upp­safn­aðar gjör­gæslu­legur orðið vel yfir 50 tals­ins.



Jafn­vel gæti farið svo að allt að 25 manns þyrftu á gjör­gæslu­inn­lögn á sama tíma skömmu fyrir miðjan mán­uð­inn, sam­kvæmt svart­sýnni spá sem byggir á því að fleiri smit grein­ist hjá eldra fólki.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent