Guðmundur Kristjánsson hefur ákveðið að láta af störfum sem forstjóri Brims hf. af persónulegum ástæðum og hefur stjórn félagsins samþykkt það á reglulegum stjórnarfundi sem fór fram í dag. Þetta kemur fram í tilkynningu á vef fyrirtækisins.
Guðmundur hafði verið forstjóri félagsins, sem áður hét HB Grandi, frá því í júní árið 2018.
Kristján Þ. Davíðsson, stjórnarformaður Brims, hefur tekið tímabundið við verkefnum og skyldum forstjóra og mun gera það þangað til að nýr forstjóri hefur verið ráðinn.
Guðmundur situr eftir sem áður í stjórn félagsins, en hann er meirihlutaeigandi í Útgerðarfélagi Reykjavíkur (ÚR), sem er stærsti einstaki eigandi Brims.
Í morgun var greint frá því, í kauphallartilkynningu frá Brimi, að ÚR hefði selt 0,8 prósent hlut í félaginu fyrir 600 milljónir króna.