Píratar mælast næst stærstir í nýrri skoðanakönnun frá MMR

Sjálfstæðisflokkurinn mælist með 23,5 prósent fylgi í nýrri könnun MMR, en þar í kjölfarið koma Píratar með 14,6 prósent fylgi. Framsóknarflokkurinn væri minnsti flokkurinn sem næði inn þingmanni miðað við þessa könnun og mælist með 6,4 prósent fylgi.

7DM_9838_raw_1769.JPG
Auglýsing

Fylgi Sjálf­stæð­is­flokks­ins mælist 23,5 pró­sent í nýrri skoð­ana­könnun frá MMR og eykst um rúmt pró­sentu­stig frá síð­ustu könn­un. Píratar fylgja í kjöl­farið með 14,6 pró­sent stuðn­ing og eykst fylgi flokks­ins um þrjú pró­sentu­stig á milli mæl­inga. 

Fylgi Sam­fylk­ingar jókst um eitt pró­sentu­stig og mælist nú 13,3 pró­sent en fylgi Fram­sókn­ar­flokks­ins minnkar um tæp­lega þrjú pró­sentu­stig frá síð­ustu mæl­ingu MMR og mælist núna 6,4 pró­sent, sem er það minnsta sem flokk­ur­inn hefur mælst með í könn­unum MMR frá síð­ustu kosn­ingum árið 2017. 

Stuðn­ingur við rík­is­stjórn­ina mæld­ist 47,5 pró­sent og minnkar um tæp sjö pró­sentu­stig frá síð­ustu könn­un, þar sem stuðn­ingur mæld­ist 54,5 pró­sent. Stuðn­ingur við stjórn­ina er þó enn nokkuð meiri en áður en kór­ónu­veiru­far­ald­ur­inn fór að geisa, en þá mæld­ist hann 38,8 pró­sent, 21. febr­ú­ar.

Auglýsing

Síð­asta könnun MMR var birt 8. maí, en þessi nýja mæl­ing á stuðn­ingi við flokk­ana var gerð dag­ana 19.-25. maí.

Lítil hreyf­ing er á mældu fylgi ann­arra flokka, en Við­reisn mælist fjórði stærsti flokk­ur­inn með 11,3 pró­sent, þar næst kemur Mið­flokk­ur­inn sem mælist með 10,8 pró­sent og svo koma Vinstri græn sem mæl­ast með 10,6 pró­sent, einu pró­sentu­stigi minna en í síð­ustu könnun MMR.

Sós­í­alista­flokkur Íslands mælist með 4,1 pró­sent og Flokkur fólks­ins mælist með 3,6 pró­sent. Stuðn­ingur við aðra mæld­ist 1,8 pró­sent sam­an­lagt.

Skoð­ana­könn­unin var sem áður segir fram­kvæmd dag­ana 19.-25. maí og bár­ust alls 944 svör Íslend­inga 18 ára og eldri sem valdir voru af handa­hófi úr hópi álits­gjafa MMR.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent