Ísland líklegast með veikustu löggjöfina á leigumarkaði

Þrátt fyrir tilefni til breytingar á lögum um leigumarkaðinn er slíkt vandmeðfarið og nauðsynlegt er að læra af reynslu annarra landa í þeim efnum.

Hús í miðbæ Reykjavíkur
Auglýsing

Ef leigu­mark­aður á að virka vel fyrir báða aðila – leigu­sala og leigj­endur – er nauð­syn­legt að um hann ríki ein­hvers konar lög­gjöf með jafn­vægi á milli rétt­inda beggja aðila. Þetta kemur fram í grein Ólafs Sindra Helga­son­ar, yfir­hag­fræð­ings Hús­næð­is- og mann­virkja­stofn­un­ar, og Fred­riks Kopsch, dós­ents í fast­eigna­fræðum við Lund­ar­há­skóla, sem birt­ist í Vís­bend­ingu.

Í henni segir að leigu­mark­aður gegni mik­il­vægu hlut­verki á hús­næð­is­mark­aði. Til að mynda þjóni hann heim­ilum sem þurfa á leigu­hús­næði að halda vegna tíma­bund­inna aðstæðna og heim­ilum með lítið eigið fé eða sem eiga í erf­ið­leikum með að afla sér fjár­magns til hús­næð­is­kaupa.

Í nýlegri rann­sókn þeirra Ólafs og Fred­riks eru rök færð fyrir því að lög­gjöf þurfi mögu­lega að taka til­lit til breyttra aðstæðna á mark­aði. Í henni eru enn fremur teknar saman nokkrar vís­bend­ingar sem gefa til kynna að form­gerð leigu­mark­að­ar­ins á Íslandi hefur breyst tals­vert frá því á árunum fyrir hrun. Stuðst er við kann­anir um aðstæður á leigu­mark­aði og skoð­aðar breyt­ingar í svörum ásamt því að lög­gjöf á Íslandi er borin saman við lög­gjöf­ina á hinum Norð­ur­lönd­un­um.

Auglýsing

Leigu­verð í Sví­þjóð ákvarðað út frá svoköll­uðu nota­gildi

Í rann­sókn­inni er nánar farið í lög­gjöf­ina á Íslandi og hún borin saman við lög­gjöf­ina á hinum Norð­ur­lönd­un­um. Meðal sam­an­burð­ar­land­anna er Sví­þjóð með sterk­ustu lög­gjöf­ina fyrir leigj­end­ur, að því er fram kemur í grein­inni.

„Þar er leigu­verð ákvarðað út frá svoköll­uðu nota­gildi sem tekur mið af leigu sam­bæri­legra íbúða. Þetta er svipað í grunn­inn og í Nor­egi og Finn­landi þar sem leiga á að vera svipuð og fyrir aðrar íbúðir en sænska kerfið hefur leitt til þess að leiga er langt undir jafn­vægisverði þar í landi, einkum í stærri borg­um. Sví­þjóð glímir við mestu vanda­málin í tengslum við afleið­ingu af því sem búast má við af slíkri lög­gjöf, t.a.m. eru biðlistar eftir leigu­í­búðum þar mjög lang­ir. Hins vegar virð­ist vera þróun í átt að ein­hverjum til­slök­un­um, a.m.k. hvað varðar breyt­ingar á leigu milli samn­inga en of snemmt er að segja til um þá þróun og hvaða áhrif hún kann að hafa.

Í Dan­mörku eru svipuð rétt­indi hvað varðar hús­næð­is­ör­yggi og í Sví­þjóð en ekki er til­greint til hversu langs tíma leigj­andi leigir íbúð­ina og leigu­sali getur lent í tals­verðum vand­ræðum með að segja upp samn­ingi. Í Dan­mörku, Finn­landi og Nor­egi er leyfi­legt að láta leigu­verð fylgja vísi­tölu. Í Dan­mörku er það hins vegar ein­ungis leyfi­legt fyrir hluta mark­að­ar­ins.“

Fredrik Kopsch og Ólafur Sindri Helgason

Nauð­syn­legt að læra af reynslu ann­arra þjóða

Til að bera saman lög­gjöf Norð­ur­land­anna er ein­blínt á þrjá flokka: Hækkun á leigu á samn­ings­tíma, hækkun á leigu á milli samn­inga og hús­næð­is­ör­yggi leigj­anda. Í grein­inni kemur fram að í sam­an­burði við önnur Norð­ur­lönd hafi Ísland lík­leg­ast veik­ustu lög­gjöf­ina hvað varðar þessar þrjár víddir í sam­an­burði við hin Norð­ur­löndin en hún sé nokkuð svipuð lög­gjöf­inni í Nor­egi. Með þeim breyt­ingum sem hafa verið kynntar á húsa­leigu­lögum í ár gæti hins vegar lög­gjöfin færst meira í átt­ina að hinum Norð­ur­lönd­un­um.

„Þrátt fyrir mögu­legt til­efni til breyt­ingar á lög­gjöf­inni er slíkt vand­með­farið og nauð­syn­legt er að læra af reynslu ann­arra landa í þeim efn­um. Almennt er það sam­dóma álit hag­fræð­inga að aukið fram­boð leysir fleiri vanda­mál á leigu­mark­aði í stað hertra reglna. Of harðar reglur geta dregið úr fram­boði. Með auknu fram­boði jafn­ast samn­ings­staða milli leigj­anda og leigu­sala og heldur aftur af hækkun leigu. Hins vegar er ekki ávallt hægt að tryggja nægi­legt fram­boð og nauð­syn­legt að ákveðin rétt­indi séu tryggð og jafn­vægi á samn­ings­stöðu ríki milli beggja aðila.“

Hægt er að ger­ast áskrif­andi að Vís­bend­ingu hér.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent