Ákveðið hefur verið að nær allir ráðherrar í ríkisstjórn Íslands fari í tvöfalda skimun og viðhafi smitgát á milli, eftir að nokkur kórónuveirusmit greindust í gær hjá einstaklingum sem dvöldu á Hótel Rangá.
Ríkisstjórnin snæddi kvöldverð á hótelinu þriðjudaginn 18. ágúst, eftir að hafa haldið ríkisstjórnarfund á Hellu. Fyrri skimun ráðherranna fer fram síðar í dag og sú síðari á mánudag. Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins.
Þar kemur fram að ráðherrar ríkisstjórnarinnar teljist til „ytri hrings hins mögulega smithóps“ og séu því ekki hluti þess hóps sem auknar líkur eru á að hafi verið útsettur fyrir smiti.
Svandís og Ásmundur sleppa
Tveir ráðherrar snæddu ekki á Hótel Rangá, Svandís Svavarsdóttir heilbrigðisráðherra og Ásmundur Einar Daðason félagsmálaráðherra. Þau þurfa því ekki að undirgangast ráðstafanirnar.
Ráðstafanir sóttvarnaryfirvalda í kjölfar athugunar smitrakningarteymis skipta þeim sem höfðu viðkomu á Hótel Rangá í þrjá hópa, samkvæmt því sem kemur fram á vef stjórnarráðsins.
Fyrsti hópurinn er sá sem er líklegastur til að hafa verið útsettur fyrir smiti og hefur í dag 14 daga sóttkví. Annar hópurinn er talinn minna líklegur til að hafa verið útsettur fyrir smiti og fer í eina skimun og viðhefur úrvinnslusóttkví þar til niðurstaða úr skimun berst.
Þriðji hópurinn, sem ríkisstjórnin tilheyrir og er sömuleiðis minna útsettur fyrir smitum, fer í tvöfalda skimun og viðhefur smitgát á milli, sem er sú aðferð sem notuð hefur verið fyrir heilbrigðisstarfsfólk, lögreglufólk, framlínufólk í orkufyrirtækjum og lykilstarfsfólk hjá fjölmiðlum og í stjórnkerfinu, samkvæmt því sem segir í tilkynningu ríkisstjórnarinnar um þetta efni.