Flestir ráðherrar í tvær skimanir og smitgát eftir kvöldverð á Suðurlandi

Ákveðið hefur verið að ráðherrar í ríkisstjórninni fari í tvær skimanir og viðhafi smitgát á milli, vegna hópsmits sem kom upp á Hótel Rangá, þar sem flestir ráðherrar borðuðu kvöldmat síðasta þriðjudag.

Allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar nema heilbrigðisráðherra og félags- og barnamálaráðherra þurfa fara í tvær skimanir og viðhafa smitgát á milli.
Allir ráðherrar ríkisstjórnarinnar nema heilbrigðisráðherra og félags- og barnamálaráðherra þurfa fara í tvær skimanir og viðhafa smitgát á milli.
Auglýsing

Ákveðið hefur verið að nær allir ráð­herrar í rík­is­stjórn Íslands fari í tvö­falda skimun og við­hafi smit­gát á milli, eftir að nokkur kór­ónu­veirusmit greindust í gær hjá ein­stak­lingum sem dvöldu á Hótel Rangá. 

Rík­is­stjórnin snæddi kvöld­verð á hót­el­inu þriðju­dag­inn 18. ágúst, eftir að hafa haldið rík­is­stjórn­ar­fund á Hellu. Fyrri skimun ráð­herr­anna fer fram síðar í dag og sú síð­ari á mánu­dag. Þetta kemur fram á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Þar kemur fram að ráð­herrar rík­is­stjórn­ar­innar telj­ist til „ytri hrings hins mögu­lega smit­hóps“ og séu því ekki hluti þess hóps sem auknar líkur eru á að hafi verið útsettur fyrir smit­i. 

Auglýsing

Svan­dís og Ásmundur sleppa

Tveir ráð­herrar snæddu ekki á Hótel Rangá, Svan­dís Svav­ars­dóttir heil­brigð­is­ráð­herra og Ásmundur Einar Daða­son félags­mála­ráð­herra. Þau þurfa því ekki að und­ir­gang­ast ráð­staf­an­irn­ar.

Ráð­staf­anir sótt­varn­ar­yf­ir­valda í kjöl­far athug­unar smitrakn­ing­arteymis skipta þeim sem höfðu við­komu á Hótel Rangá í þrjá hópa, sam­kvæmt því sem kemur fram á vef stjórn­ar­ráðs­ins.

Fyrsti hóp­ur­inn er sá sem er lík­leg­astur til að hafa verið útsettur fyrir smiti og hefur í dag 14 daga sótt­kví. Annar hóp­ur­inn er tal­inn minna lík­legur til að hafa verið útsettur fyrir smiti og fer í eina skimun og við­hefur úrvinnslu­sótt­kví þar til nið­ur­staða úr skimun berst. 

Þriðji hóp­ur­inn, sem rík­is­stjórnin til­heyrir og er sömu­leiðis minna útsettur fyrir smit­um, fer í tvö­falda skimun og við­hefur smit­gát á milli, sem er sú aðferð sem notuð hefur verið fyrir heil­brigð­is­starfs­fólk, lög­reglu­fólk, fram­línu­fólk í orku­fyr­ir­tækjum og lyk­il­starfs­fólk hjá fjöl­miðlum og í stjórn­kerf­inu, sam­kvæmt því sem segir í til­kynn­ingu rík­is­stjórn­ar­innar um þetta efni.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent