Yfir 90% landsmanna vilja að Alþingi forgangsraði fjármunum til heilbrigðismála, samkvæmt skoðanakönnun sem Gallup gerði fyrir Pírata.
Píratar létu gera könnunina í nóvember í fyrra og svo aftur í ágúst og til 11. september í ár.
Rúmlega 50 prósent vilja að þingið forgangsraði fjármunum í þágu mennta- og fræðslumála og 39 prósent í almannatryggingar og velferðarmál. 29 prósent vilja að húsnæðis-, skipulags- og hreinsunarmál fari í forgang og 27,5 prósent vilja forgangsraða til löggæslu og öryggismála.
Heilbrigðismál eru í afgerandi forgangi hjá landsmönnum óháð aldri, menntun, efnahag, búsetu, kyni og hvaða flokk fólk kýs.
Könnunin nú var gerð með netkönnun, 4140 manns voru í úrtakinu, 2421 svöruðu og er svarhlutfall því 58,5%.
„Þrátt fyrir mikinn niðurskurð, lág laun, lélegan aðbúnað og mikið vaktaálag í gegnum kreppuna þá hélt heilbrigðistarfsfólkið okkar öllum þáttum heilbrigðisþjónustunnar grænum samkvæmt alþjóðlegum þjónustustuðlinum „Euro Health Consumer Index 2013“ sem landlæknir styðst við samkvæmt lögum og reglum.
Heilbrigðisstarfsfólkið okkar er réttilega langþreytti eins og fyrsta læknaverkfall íslandssögunnar í vetur sýnir. Landlæknir áréttaði fyrir stjórnvöldum á árinu að lög á verkföll heilbrigðisstarfsmanna væri ekki langtímalausn, og benti á að aðrar leiðir væru færar til að koma í veg fyrir verkföllinn. Nauðsynlegur þáttur langtímalausnar er að Alþingi fari að vilja 90% landsmanna og forgangsraði fjármunum með afgerandi hætti í fyrsta flokks heilbrigðisþjónustu,“ segir í tilkynningu Pírata um málið.