Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu hefur haft á annan tug mansalsmála til rannsóknar frá því í apríl síðastliðnum. Málin tengjast kynlífsþrælkun, nauðungarvinnu og málamyndahjónaböndum og teygja sig til allra heimsálfa. Þetta er haft eftir Öldu Hrönn Jóhannsdóttur, aðstoðarlögreglustjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinum, í Morgunblaðinu í dag.
Alda, sem er stödd í Bandaríkjunum til að kynna sér þessi mál, var einnig í viðtali við Deseret News, fjölmiðil í Utah, um málið. Þar sagði hún að konur og börn séu flutt frá Austur-Evrópu, Kína og Nígeríu og að aukinn ferðamannastraumur hafi leitt til vaxtar í kynlífsferðamennsku og vændi á Íslandi. Þar er Alda einnig spurð um aukna kynlífsferðamennsku á Íslandi og svarar hún því til að Ísland sé hluti af heiminum, það sem gerist þar gerist líka á Íslandi. "Það er alltaf þannig. Þar sem er aukin ferðamennska fylgir aukinn kynlífstúrismi". Að sögn Öldu liggur þó ekki fyrir nein tölfræði um hversu algengt mansal sé en þó sé um aukningu að ræða. Lögreglunni séu að berast tilkynningar um að vændi sé til dæmis stundað á hótelum og í Airbnb-íbúðum. Auk þess segir Alda að vitað sé um dæmi um að erlendir ferðamenn komi til Íslands til að taka þátt í kynlífsferðamennsku.