Á ÁTVR að velta upp siðferðislegum spurningum um meiri gróða?

neftobak_800_030214.jpg
Auglýsing

Áhyggjur for­stjóra ÁTVR, Ívars J. Arndal, af auk­inni sölu á nef­tó­baki sem fyr­ir­tækið fram­leiðir og selur hefur vakið athygli. Í inn­gangi árs­skýrslu ÁTVR fyrir árið 2014 viðr­aði Ívar þær skoð­anir sínar og sagð­ist hafa áhyggjur af því að hin aukna neysla sé helst í munn. „Það er sið­ferði­leg spurn­ing hvenær íslenska nef­tó­bak­ið, sem búið er að fram­leiða eftir sömu upp­skrift frá því fyrir stríð, er raun­veru­lega orðið að munn­tó­baki og þar með ólög­leg­t,“ sagði Ívar.

Nú er vert að taka fram, fyrir þá örfáu sem ekki vita, að helsta tekju­lind ÁTVR er sala á áfengi. Þar á eftir kemur sala á sígar­ett­um. Engum sið­ferð­is­legum spurn­ingum um sam­fé­lagsvá þess­arra vímu­efna er velt upp í inn­gangi for­stjór­ans.

Í lögum um verslun með áfengi og tóbak er hlut­verk ÁTVR skil­greint. Þar segir meðal ann­ars að starf­semin skuli miðuð við „að hún sé sem hag­kvæmust og afli tekna sem nægi til að greiða rekstr­ar­kostnað og skila hæfi­legum arði til rík­is­sjóðs“. Sala nef­tó­baks­ins, sem er heimil sam­kvæmt lögum sem Alþingi set­ur, skil­aði ÁTVR fimmt­ungi meira í kass­ann í fyrra en árið 2013, alls um 115 millj­ónum króna. Í þeim lögum er heldur ekk­ert að finna um sið­ferð­is­legt vald­boð ÁTVR. Þar er reyndar að finna grein um sam­fé­lags­lega ábyrgð. Í henni er hins vegar ekk­ert minnst á tóbak heldur segir að „ÁTVR starfar með sam­fé­lags­lega ábyrgð að leið­ar­ljósi og vinnur gegn skað­legri neyslu áfeng­is.“

Auglýsing

ÁTVR er í þeirri ein­kenni­legu stöðu að engin stjórn er yfir fyr­ir­tæk­inu heldur heyrir það beint undir ráð­herra. Stjórn­endur þess lúta ekki stjórn­ar­valdi full­trúa lög­gjafans líkt og önnur fyr­ir­tæki í opin­berri eigi, eins og til dæmis Lands­virkjun eða RÚV. ÁTVR er því nokk­urs konar ríki í rík­inu.

Er til of mik­ils mælst að hinir valda­miklu stjórn­endur fyr­ir­tæk­is­ins starfi ein­fald­lega eftir þeim lag­ara­mma sem þeim er settur en láti lög­gjaf­ar­þing­ið, sem smíðar rammann utan um starf­sem­ina, um að velta fyrir sér sið­ferð­is­legum spurn­ingum sem allar óhollu vör­urnar sem fyr­ir­tækið sel­ur?

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiPæling dagsins
None