Aðeins ein kona í yfirmannsstöðu hjá lögreglunni í fyrra

10506552-728652843864933-4445601979722813296-o.1.jpg
Auglýsing

Þann 1. febr­úar í fyrra voru 683 lög­reglu­menn, þar með taldir hér­aðs­lög­reglu­menn og afleys­inga­menn, starf­andi í lög­regl­unni. Þar af voru 87 kon­ur, eða 12,7 pró­sent allra lög­reglu­manna. Hlut­fall kvenna innan lög­regl­unnar hækk­aði um eitt pró­sentu­stig á milli ára. Þetta kemur fram í árlegri sam­an­tekt um jafn­rétt­is­mál lög­regl­unnar fyrir árið 2013.

Þá kemur fram í sam­an­tekt­inni að af fimm­tíu yfir­lög­reglu­þjónum og aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjónum var aðeins ein kona, en hún gegndi stöðu aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjóns. Af 35 aðal­varð­stjórum var sömu­leiðis aðeins ein kona starf­andi, eða 2,9 pró­sent þeirra, og af 135 varð­stjórum voru ein­ungis sjö konur starf­andi, eða 5,2 pró­sent. Hlut­fall kvenna var hæst meðal lög­reglu­full­trúa, eða 18,9 pró­sent, en af 90 lög­reglu­full­trúum voru 17 konur starf­andi. Af 114 rann­sókn­ar­lög­reglu­mönnum voru 18 þeirra kon­ur, eða 15,8 pró­sent, en flestar konur voru starf­andi sem almennir lög­reglu­menn, eða 38 konur af 228 lög­reglu­mönn­um, hlut­fall kvenn­anna þar var því 16,7 pró­sent.

Við vinnslu sam­an­tekt­ar­innar bár­ust aðeins upp­lýs­ingar frá tíu lög­reglu­emb­ættum á lands­vísu af átján. Í upp­lýs­ing­unum kemur meðal ann­ars fram að af þeim 40 starfs­mönnum sem sátu í yfir­stjórn þess­ara tíu lög­reglu­emb­ætta, voru níu konur eða 22,5 pró­sent, á mótii 31 karli (77,5 pró­sent). Af 530 lög­reglu­mönnum voru 463 karlar í fullu starfi (87,4 pró­sent) á móti 67 kon­um, eða 12,6 pró­sent. Ekki var til­kynnt um neitt til­vik ein­eltis eða kyn­ferð­is­legrar áreitni á árinu 2013 sam­kvæmt upp­lýs­ingum fyrr­greindra tíu lög­reglu­emb­ætta.

Auglýsing

Hanna Birna Krist­jáns­dóttir inn­an­rík­is­ráð­herra sagð­i ­fyrir tæpu ári síðan að lágt hlut­fall kvenna í lög­regl­unni væri áhyggju­efni. Í byrjun júlí skor­aði svo Kvenn­rétt­inda­fé­lag Íslands á Rík­is­lög­reglu­stjóra að fjölga konum innan lög­regl­unnar, og þá sér­stak­lega í yfir­manns­stöður innan emb­ætt­is­ins. Í apríl var önnur konan gerð að aðstoð­ar­yf­ir­lög­reglu­þjóni, og gegna því tvær konur stöð­unni í dag. Þá skip­aði inn­an­rík­is­ráð­herra Sig­ríði Björk Guð­jóns­dóttur í stöðu lög­reglu­stjóra höf­uð­borg­ar­svæð­is­ins í lok júlí.

 

 

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None