Aðgangur Bjarna Benediktssonar fjármálaráðherra á vefsíðunni Ashley Madison var uppfærður árið 2011 og aftur árið 2013, samkvæmt því sem fram kemur í frétt Stundarinnar. Eiginkona Bjarna, Þóra Margrét Baldvinsdóttir, sagði í yfirlýsingu á Facebook í hádeginu í dag að þau hjónin hefðu skráð sig saman inn á vefinn árið 2008 en aldrei farið inn á hann síðan þá. Gögnin sem lekið var af síðunni sýna hins vegar að þetta sé ekki rétt, samkvæmt Stundinni.
Reikningurinn var búinn til rétt fyrir miðnætti þann 13. september 2008, þegar Bjarni var þingmaður Sjálfstæðisflokksins. Samkvæmt gögnunum sem Stundin vísar í var reikningurinn uppfærður þremur árum síðar, þann 21. október 2011, og svo aftur þann 25. janúar árið 2013.
Þóra Margrét sagði að þeim hjónum hafi borist margar ábendingar um að nú sé talsvert rætt manna í milli að gamalt netfang Bjarna tengist gögnunum. Netfangið sem um ræðir er bjarniben@n1.is.
Þóra segir að þau hjónin hafi heyrt um þennan „umdeilda vef í erlendum fréttum fyrir um 7 árum (2008). Í framhaldi af því skoðuðum við vefinn fyrir forvitnissakir, en til þess þurfti að fylla út þar til gert form, skrá netfang, erlent póstnúmer og fleira sem við gerðum í algjörum hálfkæringi og af léttúð,“ skrifar Þóra.
Hún segir þau hjónin aldrei síðan hafa farið inn á vefinn og ekki hafi verið greitt fyrir skráningu eða aðgang að honum. „Þessi heimsókn hefur ekki leitt til samskipta við nokkurn mann, hvað þá trúnaðarbrots af neinum toga. Ekki er allt sem sýnist á netinu,“ skrifar hún.
Samkvæmt upplýsingum á vefsíðunni All about Ashley, þar sem hægt er að fletta upp notendum, kemur fram að notendanafn Bjarna hafi verið IceHot1. Heimilisfangið sem skráðar var var í Bradenton í Flórída í Bandaríkjunum.