Ætla að reka verksmiðjur á svartolíu frekar en rafmagni til að spara

makríll-muynd.jpg
Auglýsing

Fiski­mjöls­verk­smiðjur munu, að minnsta kosti margar hverjar, brenna olíu í vetur frekar en að nota raf­magn til að starf­rækja starf­semi sína. Ástæðan er verð­hækkun Lands­virkj­unar á ótryggðri orku og fallandi heims­mark­aðs­verð á olíu. Þetta kemur fram í Morg­un­blað­inu í dag.

Mun umhverf­is­vænna er að not­ast við raf­magn til að reka verk­smiðj­urnar en svartol­íu.

Þar segir að flestar fiski­mjöls­verk­smiðjur lands­ins hafi verið raf­væddar að hluta eða öllu leyti með til­heyr­andi kostn­aði. Blaðið segir að for­sendur fjár­fest­ing­anna hafi í flestum til­vikum verið  „að hægt yrði að kaupa ótryggða orku á hag­kvæmu verði og því hefur olíu­kötl­unum verið haldið við þannig að hægt væri að grípa til þeirra ef raf­magn hefur verið skammt­að“.

Auglýsing

Að und­an­förnu hafa mörg fyr­ir­tækin end­ur­samið um orku­kaup við dreif­ing­ar­fyr­ir­tæki og þá hafa taxt­arnir hækkað veru­lega. Frið­rik Már Guð­munds­son, fram­kvæmda­stjóri Loðnu­vinnsl­unnar á Fáskrúðs­firði, segir við Morg­un­blaðið að „eins og staðan er núna munum við brenna olíu í vetur í stað þess að kaupa raf­magn“. Ástæðan sé sú að raf­orka verði ekki sam­keppn­især við olíu í verði. Páll Snorra­son, fram­kvæmda­stjóri fjár­mála- og rekstr­ar­sviðs Eskju á Eski­firði, segir að um þessar mundir sé hægt að festa sér olíu á hag­kvæmu verði til notk­unar út árið.

Félag íslenskra fiski­mjöls­fram­leið­enda hefur óskað eftir fundi með Lands­virkjun í þess­ari viku til að fá skýr­ingar á verð­hækk­un­um.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None