Áhorf á fréttir RÚV minnkað um fimmtung frá 2008

Kristján Loftsson
Auglýsing

Um fimmt­ungi færri horfðu á kvöld­fréttir RÚV að með­al­tali í lok ágúst og þorra sept­em­ber­mán­aðar 2014 en gerðu það í sept­em­ber 2008. Þetta er hægt að sjá út úr fjöl­miðla­mæl­ingum Capacent sem aðgengi­legar eru á vefn­um. Um er að ræða hlut­fall þeirra Íslend­inga sem horfðu á með­alm­ín­útu af frétta­tíma RÚV.

Í sept­em­ber 2008 horfðu að með­al­tali 27,8 pró­sent lands­manna í ald­urs­hópnum 12-80 ára á með­alm­ín­útu af fréttir RÚV í vikum 36-39. Í ár horfðu að með­al­tali 22,2 pró­sent sama hóps á kvöldréttir RÚV í vikum 35-38, en tíma­bilið nær frá lokum ágúst og fram til 21. sept­em­ber. Á því tíma­bili féll einn frétta­tími niður vegna lands­leiks Íslands og Tyrk­lands í knatt­spyrnu og er tekið til­lit til þess í útreikn­ingum Kjarn­ans. Því horfa um 20 pró­sent færri á með­alm­ín­útu af fréttum RÚV nú en gerðu það á svip­uðum tíma árið 2008. Ef horft er til upp­safn­aðs áhorf er hlut­falls­leg fækkun enn meiri, eða 27,4 pró­sent.

For­skotið minnkar veru­lega



Stöð 2 hefur tek­ist betur að halda á áhorf­endum sem horfa á á með­alm­ín­útu af frétta­tíma stöðv­ar­inn­ar. Þeim hefur fækkað um fjögur pró­sent frá 2008. Í sept­em­ber það ár horfðu 21,9 pró­sent lands­manna í ald­urs­hópnum 12-80 ára á frétta­tíma Stöðvar 2 en í viku 35-38 í ár, sem nær frá lokum ágúst og fram til 21. sept­em­ber, horfðu 21 pró­sent sama hóps á hann.

Þrátt fyrir að hafa tapað áhorfi hefur Frétta­stofa Stöðvar 2 því saxað mjög á for­skot Frétta­stofu RÚV á síð­ustu sex árum. Árið 2008 horfðu 21 pró­sent fleiri á með­alm­ín­útu af fréttum RÚV en Stöðvar 2 að með­al­tali á við­mið­un­ar­tíma­bil­inu. Árið 2014 er mun­ur­inn ein­ungis 5,4 pró­sent.  Í viku 38 í ár,frá 15-21. sept­em­ber,  horfðu fleiri á fréttir Stöðvar 2 í ald­urs­hópnum 12-80 ára en á frétta­tíma RÚV. Alls horfðu 19,4 pró­sent hóps­ins á með­alm­ín­útu af frétta­tíma Stöðvar 2 en 19 pró­sent á fréttir í rík­is­sjón­varp­inu.

Auglýsing

Upp­safnað áhorf á fréttir Stöðvar 2 hefur auk­ist



Ef miðað er við upp­safnað áhorf á frétta­tím­ann – hlut­fall þeirra sem horfðu í að minnsta kosti fimm mín­útur sam­fleytt á hann – er fækkun þeirra sem horfðu á fréttir RÚV í sama ald­urs­hóp enn meiri, eða 27,4 pró­sent.

Upp­safnað áhorf á fréttir Stöðvar 2 er hins vegar meira nú en það var á við­mið­un­ar­tíma­bil­inu 2008. Árið 2014 er það 25,9 pró­sent en var 25,6 pró­sent að með­al­tali í sept­em­ber 2008. Upp­safnað áhorf hefur því auk­ist um 1,2 pró­sent.

 

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None