Trú á lykilstjórnendum
Róbert segir að sjóðirnir sjái hvað Alvogen hafi náð góðum árangri á skömmum tíma. Það sem ráði þó mestu um ákvörðun þeirra að fjárfesta í fyrirtækinu ný sé trú þeirra á lykilstjórnendum og framtíðarsýn þeirra.
Vaxtadraumar Alvogen eiga sér aðdraganda
Kjarninn greindi ítarlega frá framtíðarsýn Alvogen í apríl 2014. Þar kom fram að Róbert Wessman hefði talað mikið fyrir vaxtaáformum fyrirtækisins hjá alþjóðlegum bönkum á þeim tíma og að stefnan væri sett á að auka tekjur Alvogen margfalt á næstu þremur árum. Í einni sviðsmyndinni sem teiknuð var upp í kynningu Róberts fyrir austurríska bankann Reiffeisen hinn 28. október í 2013, sem Kjarninn hefur undir höndum, kom fram að tekjur fyrirtækisins á árinu 2014 ættu að verða 460,6 milljónir Bandaríkjadala en muni vaxa uppi í 902,5 milljónir dala á árinu 2017; tæplega tvöfaldast á þremur árum. Miðað við núverandi gengi krónunnar gagnvart Bandaríkjadal samkvæmt upplýsingum á vefsíðu Seðlabanka Íslands nema 902,5 milljónir dala um 118 milljörðum króna.
Einnig var gert ráð fyrir að EBITDA-hagnaður (rekstrarhagnaður fyrir afskriftir, fjármagnsliði og skatta) muni vaxa jafnt og þétt á þessum tíma; fara úr 69,2 milljónum dala í 217,2 milljónir dala. Helsta markaðssvæði fyrirtækisins er Bandaríkin, að því er fram kemur í kynningunni, en af ríflega 69,2 milljóna dala EBITDA-hagnaði fyrirtækisins á árinu 2014 áttu 52,3 milljónir dala koma frá Bandaríkjunum. Önnur sterk markaðssvæði Alvogen eru Mið- og Austur-Evrópa og Asía.
Í kynningunni er sérstaklega tekið fram að fyrirtækið sé leitt af sama teymi og hafi gert Actavis Group að einu af leiðandi lyfjafyrirtækjum á heimsvísu, en Róbert stýrði sem kunnugt er Actavis um sjö ára skeið. Hann hætti hjá fyrirtækinu í ágúst 2008 eftir deilur við Björgólf Thor Björgólfsson, sem þá var stærsti eigandi Actavis. Deilur þeirra hafa síðan verið tíðar á dagskrá dómstóla hér á landi en þeir gerðu með sér sátt í nóvember 2012.