Alþjóðlegir fjárfestingasjóðir kaupa meirihluta í Alvogen - metið á 270 milljarða

robert1.jpg
Auglýsing
Hlut­hafa­hóp­ur, undir for­ystu alþjóð­legu fjár­fest­inga­sjóð­anna CVC Capi­tal Partners og Tema­sek, hefur keypt meiri­hluta í lyfja­fyr­ir­tæk­inu Alvogen. Heild­ar­virði fyr­ir­tæk­is­ins er metið 270 millj­arðar króna, en kaup­verðið er ekki gefið upp. Alþjóð­legar höf­uð­stöðvar Alvogen eru á Íslandi og um 80 manns vinna hjá fyr­ir­tæk­inu hér­lend­is, sem byggir meðal ann­ars Hátækni­setur í Vatns­mýr­inni um þessar mundir Róbert Wessman verður áfram for­stjóri Alvogen og leið­andi hlut­hafi. Frá þessu er greint í Frétta­blað­in­u. 



Fjár­fest­inga­sjóð­irnir CVC og Tema­sek eru í hópi stærstu fjár­fest­inga­sjóða í heim­inum í dag og nema heild­ar­um­svif þeirra um 290 millj­örðum banda­ríkja­dala eða um 38 þús­und millj­örðum íslenskra króna.


Trú á lyk­il­stjórn­endum



Alvogen er með starf­semi í 35 löndum og um 2.300 starfs­menn starfa hjá fyr­ir­tæk­inu. Róbert Wessman segir að nýju fjár­fest­arnir hafi trú á fram­tíð­ar­sýn Alvogen og að sjóð­irnir hafi því skuld­bundið sig til að styðja við fram­tíð­ar­vöxt fyr­ir­tæk­is­ins með þekk­ingu sinni og fjár­magni. Frétta­blaðið seg­ist hafa heim­ildir fyrir því að rekstr­ar­tekjur Alvogen verði yfir 100 millj­arðar króna á þessu ári og rekstr­ar­hagn­aður um 30 millj­arðar króna.


Róbert segir að sjóð­irnir sjái hvað Alvogen hafi náð góðum árangri á skömmum tíma. Það sem ráði þó mestu um ákvörðun þeirra að fjár­festa í fyr­ir­tæk­inu ný sé trú þeirra á lyk­il­stjórn­endum og fram­tíð­ar­sýn þeirra.

Vaxta­draumar Alvogen eiga sér aðdrag­anda



Kjarn­inn greindi ítar­lega frá fram­tíð­ar­sýn Alvogen í apríl 2014. Þar kom fram að Róbert Wessman hefði talað mikið fyrir vaxta­á­formum fyr­ir­tæk­is­ins hjá alþjóð­legum bönkum á þeim tíma og að stefnan væri sett á að auka tekjur Alvogen marg­falt á næstu þremur árum.  Í einni sviðs­mynd­inni sem teiknuð var upp í kynn­ingu Róberts fyrir aust­ur­ríska bank­ann Reiffeisen hinn 28. októ­ber í 2013, sem Kjarn­inn hefur undir hönd­um, kom fram að tekjur fyr­ir­tæk­is­ins á árinu 2014 ættu að verða 460,6 millj­ónir Banda­ríkja­dala en muni vaxa uppi í 902,5 millj­ónir dala á árinu 2017; tæp­lega tvö­fald­ast á þremur árum. Miðað við núver­andi gengi krón­unnar gagn­vart Banda­ríkja­dal sam­kvæmt upp­lýs­ingum á vef­síðu Seðla­banka Íslands nema 902,5 millj­ónir dala um 118 millj­örðum króna.

Einnig var gert ráð fyrir að EBIT­DA-hagn­aður (rekstr­ar­hagn­aður fyrir afskrift­ir, fjár­magnsliði og skatta) muni vaxa jafnt og þétt á þessum tíma; fara úr 69,2 millj­ónum dala í 217,2 millj­ónir dala. Helsta mark­aðs­svæði fyr­ir­tæk­is­ins er Banda­rík­in, að því er fram kemur í kynn­ing­unni, en af ríf­lega 69,2 millj­óna dala EBIT­DA-hagn­aði fyr­ir­tæk­is­ins á árinu 2014 átt­u 52,3 millj­ónir dala koma frá Banda­ríkj­un­um. Önnur sterk mark­aðs­svæði Alvogen eru Mið- og Aust­ur-­Evr­ópa og Asía.

Auglýsing

Í kynn­ing­unni er sér­stak­lega tekið fram að fyr­ir­tækið sé leitt af sama teymi og hafi gert Act­a­vis Group að einu af leið­andi lyfja­fyr­ir­tækjum á heims­vísu, en Róbert stýrði sem kunn­ugt er Act­a­vis um sjö ára skeið. Hann hætti hjá fyr­ir­tæk­inu í ágúst 2008 eftir deilur við Björgólf Thor Björg­ólfs­son, sem þá var stærsti eig­andi Act­a­v­is. Deilur þeirra hafa síðan verið tíðar á dag­skrá dóm­stóla hér á landi en þeir gerðu með sér sátt í nóv­em­ber 2012.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None