Arion banki hagnaðist um 15,5 milljarða á fyrri hluta árs

Salan á Valitor skýrir meiran en helming hagnaðar Arion banka á öðrum ársfjórðungi, sem alls nam 9,7 milljörðum króna.

Höfuðstöðvar Arion banka í Borgartúni.
Höfuðstöðvar Arion banka í Borgartúni.
Auglýsing

Hagn­aður Arion banka nam rúmum 9,7 millj­örðum króna á öðrum árs­fjórð­ungi, sem er tæpum tveimur millj­örðum meira en á sama tíma í fyrra.

Áhrif söl­unnar á Valitor spila stóran þátt í hagn­að­in­um, en þau komu að fullu fram á öðrum fjórð­ungi árs­ins og nam sölu­hagn­að­ur­inn 5,6 millj­örðum sem þýðir að hagn­aður af reglu­legum rekstri bank­ans nam um 4,1 millj­arði króna.

Sam­an­lagður hagn­aður bank­ans á fyrstu sex mán­uðum árs­ins nemur 15,53 millj­örðum króna.

Arð­semi eig­in­fjár bank­ans var 21,8 pró­sent á öðrum árs­fjórð­ungi, en bank­inn er með mark­mið um 13 pró­sent arð­semi eig­in­fjár. Á fyrstu sex mán­uðum árs­ins nam arð­semi eig­in­fjár 16,9 pró­sent. Vaxta­munur bank­ans var 3,1 pró­sent á öðrum árs­fjórð­ungi, sam­an­borið við 2,9 pró­sent á sama tíma í fyrra.

Auglýsing

Í til­kynn­ingu frá bank­anum er haft eftir Bene­dikt Gísla­syni banka­stjóra að afkoman hafi verið góð og mestu skipti að kjarna­starf­semi bank­ans haldi áfram að þró­ast með jákvæðum hætti, auk þess sem salan á Valitor hafi klár­ast.

„Kjarna­tekjur bank­ans aukast um tæp 24% á milli ára ef horft er til ann­ars árs­fjórð­ungs og vegur aukn­ing í vaxta­tekjum þar þyngst. Jafn­framt náð­ist góður árangur á fjórð­ungnum þegar kemur að þókn­ana­tekjum sem hafa ekki verið hærri á einum fjórð­ungi og má rekja það meðal ann­ars til mik­illa umsvifa í fyr­ir­tækja­ráð­gjöf og eigna­stýr­ingu. Á móti kemur að aðstæður á fjár­mála­mörk­uðum hafa verið krefj­andi sem hefur nei­kvæð áhrif á fjár­muna­tekjur bank­ans,“ er haft eftir Bene­dikt í til­kynn­ingu bank­ans.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent