Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel, hlaut útnefninguna viðskiptafræðingur ársins 2015 af Félagi viðskiptafræðinga og hagfræðinga (FVH). Verndari verðlaunanna, Ólafur Ragnar Grímsson forseti Íslands, afhenti verðlaunin við hátíðlega afhöfn í dag á Íslenska þekkingardeginum. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá FVH sem send var fjölmiðlum síðdegis.
Árni Oddur tók við starfi forstjóra Marel síðla árs 2013, en áður hafði hann gegnt stöðu forstjóra Eyris Invest. Þá á hann sæti í stjórn félagsins Fokker Technologies.
Í umsögn dómnefndar segir meðal annars: „Hjá Marel hefur mikið vatn runnið til sjávar á þeim tíma sem Árni Oddur hefur verið forstjóri og hefur hann leitt félagið gegnum miklar breytingar með nýsköpun og framsækni að leiðarljósi.
Árið 2014 var ár breytinga í rekstri Marel en í upphafi ársins var ákveðið að ráðast í veigamiklar hagræðingaraðgerðir til þess að einfalda og straumlínulaga reksturinn. Hjá félaginu starfa yfir 4000 manns í yfir 30 löndum en hér á landi starfa um 500 manns. Þó enn sé margt óunnið þá hefur félaginu tekist að breyta miklu í rekstrinum á einu ári og hafa breytingarnar gengið vel og örugglega fyrir sig.
Verksmiðjurnar sem áður voru 19 eru orðnar 14 og það mátti sjá jákvæð merki í uppgjöri ársins 2014. Rekstrarhagnaður jókst ásamt tekjum og hafa markaðsaðilar spáð fyrirtækinu góðu gengi ef áfram heldur sem horfir. Nýsköpun félagsins til að nýta afurðir betur ásamt því að nýta orku og vatn á hagkvæman hátt er að skila sér í rekstrinum. Það eru því spennandi tímar framundan hjá Marel.“
Þá hlaut fyrirtækð Kerecis Íslensku þekkingarverðlaunin í ár en Kerecis ásamt ORF Líftækni og Carbon Recycling International voru tilnefnd til þekkingarverðlauna FVH.