Árni Páll: Engin stefnubreyting varðandi Evrópusambandið

14264829168-d500121b62-z.jpg
Auglýsing

Árni Páll Árna­son, for­maður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, seg­ist enn þeirrar skoð­unar að Ísland eigi að ganga í Evr­ópu­sam­bandið og taka upp evru. Það sé ekki von á stefnu­breyt­ingu í þessum efnum á næsta lands­fundi flokks­ins sem fer fram síðar í þessum mán­uði.

Í frétt á vef Hring­brautar,  sem byggir á við­tali við Árna Pál í þætt­inum Þjóð­braut sem sýndur var á sjón­varps­stöð­inni í gær, segir að Árni Páll sé með efa­semdir um Evr­ópu­sam­band­ið.

Árni Páll seg­ist stöðugt vera með efa­semdir um Evr­ópu­sam­band­ið. „Ég hef alltaf verið skept­ískur Evr­ópusinni og end­ur­met það reglu­lega hvort þetta sé besti hlut­ur­inn fyrir Ísland. Ég skrif­aði um þetta langan grein­ar­flokk árið 2012 og komst þá að þeirri nið­ur­stöðu að þetta væri enn besti kost­ur­inn fyrir Ísland. Ég er enn þeirrar skoð­unar að þetta sé besti kost­ur­inn fyrir Ísland.“

Auglýsing

Hann seg­ist hafa tekið það skýrt fram í við­tal­inu að þetta væri enn afstaða hans.

Stefnu­breyt­ing ekki á dag­skrá



Í við­tal­inu spurði Páll Magn­ús­son, stjórn­andi Þjóð­braut­ar, hvort að EES-­samn­ing­ur­inn dygði ekki til, en með honum hefur Ísland tekið upp um 70 pró­sent af reglu­verki Evr­ópu­sam­bands­ins. Árni Páll seg­ist hafa svarað því til að það væri ekki nóg. „Það vantar mjög mik­il­væga þætti sem skiptu máli. Gjald­miðla­málin eru stærsti þátt­ur­inn þar. Þá spurði spyrj­and­inn mig hvort það myndi breyta afstöðu minni ef það væri hægt að finna aðra lausn á því, væri þá nóg að búa við EES-­samn­ing­inn. Ég sagði að ef það væri hægt að finna aðild að alþjóð­lega við­ur­kenndum mark­aðs­hæfum gjald­miðli sem virkar þá myndi það breyta þeirri stöðu. Það hefur engum tek­ist að finna það.“

Árni Páll segir því að ekki sé von á stefnu­breyt­ingu hjá Sam­fylk­ing­unni í Evr­ópu­sam­bands­málum á lands­fundi síðar í þessum mán­uði, en hann er einn í fram­boði til for­manns flokks­ins. Sam­kvæmt síð­ustu sam­þykktu stjórn­mála­á­lyktun flokks­ins er það yfir­lýst stefna hans að ganga í Evr­ópu­sam­band­ið.

Við þurfum á þínu framlagi að halda

Þú getur tekið beinan þátt í að halda úti öflugum fjölmiðli.

Við sem vinnum á ritstjórn Kjarnans viljum hvetja þig til að vera með okkur í liði og leggja okkar góða fjölmiðli til mánaðarlegt framlag svo við getum haldið áfram að vinna fyrir lesendur, fyrir fólkið í landinu.

Kjarninn varð níu ára í sumar. Þegar hann hóf að taka við frjálsum framlögum þá varð slagorðið „Frjáls fjölmiðill fyrir andvirði kaffibolla“ til og lesendur voru hvattir til að leggja fram í það minnsta upphæð eins kaffibolla á mánuði.

Mikið vatn hefur runnið til sjávar á þeim níu árum sem Kjarninn hefur lifað. Í huga okkar á Kjarnanum hefur þörfin fyrir fjölmiðla sem veita raunverulegt aðhald og taka hlutverk sitt alvarlega aukist til muna.

Við trúum því að Kjarninn skipti máli fyrir samfélagið.

Við trúum því að sjálfstæð og vönduð blaðamennska skipti máli.

Ef þú trúir því sama þá endilega hugsaðu hvort Kjarninn er ekki allavega nokkurra kaffibolla virði á mánuði.

Vertu með okkur í liði. Þitt framlag skiptir máli.

Ritstjórn Kjarnans: Sunna Ósk Logadóttir, Þórður Snær Júlíusson, Erla María Markúsdóttir, Arnar Þór Ingólfsson, Eyrún Magnúsdóttir og Grétar Þór Sigurðsson.


Já takk, ég vil styrkja Kjarnann!
Þorbjörn Guðmundsson
Er íslenska velferðarkerfið ekki lengur griðarstaður þeirra sem minnst hafa?
Kjarninn 11. janúar 2023
Takk fyrir og sjáumst á nýjum miðli á föstudag
Bréf frá ritstjóra Kjarnans vegna sameiningar við Stundina og þess að nýr framsækinn fréttamiðill verður til í lok viku.
Kjarninn 11. janúar 2023
Sverrir Albertsson
Vatn á myllu kölska
Kjarninn 11. janúar 2023
Lögreglumenn standa vörð um gröfurnar í námunni.
Berjast fyrir þorpi á barmi hengiflugs
Lítið þorp í Rínarlöndum Þýskalands er allt komið í eigu kolarisa. Fyrirtækið ætlar sér að mylja niður húsin og stækka kolanámu sína sem þegar þekur um 80 ferkílómetra. Þetta þykir mörgum skjóta skökku við í heimi sem berst við loftslagsbreytingar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Arnþrúður Karlsdóttir, útvarpsstjóri Útvarps Sögu.
Útvarp Saga telur fjölmiðlastyrki skapa tortryggni og bjóða upp á frændhygli
Fjögur fjölmiðlafyrirtæki hafa til þessa skilað inn umsögnum um frumvarp Lilju Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra, sem mun að óbreyttu framlengja núverandi styrkjakerfi til fjölmiðla.
Kjarninn 10. janúar 2023
Sólveig Anna Jónsdóttir formaður Eflingar.
Viðræðum slitið og Efling undirbýr verkfallsaðgerðir
Samtök atvinnulífsins hafa hafnað gagntilboði Eflingar um skammtímakjarasamning, sem kvað á um meiri launahækkanir en SA hefur samið um við aðra hópa á almennum vinnumarkaði til þessa. Efling undirbýr nú verkfallsaðgerðir.
Kjarninn 10. janúar 2023
Palestínski fáninn á lofti í mótmælum í Reykjavík. Ísraelskri lögreglu hefur nú verið fyrirskipað að rífa fánann niður á almannafæri.
Fánabann og refsiaðgerðir í Palestínu í kjölfar niðurstöðu Sameinuðu þjóðanna
Degi eftir að ný ríkisstjórn tók við völdum í Ísrael samþykkti allsherjarþing Sþ að fela Alþjóðadómstólnum í Haag að meta lögmæti hernáms Ísraelsríkis á Vesturbakkanum. Síðan þá hefur stjórnin gripið til refsiaðgerða og nú síðast fánabanns.
Kjarninn 10. janúar 2023
Gríðarlega mikil dæling á sandi á sér stað í Landeyjahöfn á hverju ári. Markarfljótið ber hundruð þúsunda tonna af jarðefnum út í sjó og það á til að safnast upp í mynni hafnarinnar.
Vilja sjúga sand af hafsbotni í stórum stíl og flytja út
Eftirspurn eftir íslenskum jarðefnum er gríðarleg ef marka má framkomin áform erlendra stórfyrirtækja um nýtingu þeirra. Vinsældir hafnarinnar í Þorlákshöfn eru samhliða mjög miklar.
Kjarninn 10. janúar 2023
Meira úr sama flokkiInnlent
None